Fullorðið fólk í kringum mig í hvert skipti sem ég opna mér Pez pakka: "HAHA hvað ertu 5 ára?? Ertu að borða Pez?? Af hverju ertu ekki með 70% dökkt súkkulaði eins og við hin?"
*2 mín seinna*
Sama snobbaða fólkið: "Má ég fá eins og einn pakka hjá þér??? HELST GRÆNAN? ELSKA PEZ"
Vaknaði í dag vi�� þetta fullkomna útsýni á Amalfi ströndinni með ástina mína við hliðina á mér. Hélt að lífið yrði ekki betra.
Aldeilis kippt hratt niður á jörðina. Fyrst stungin af marglyttu, fann svo fyrsta gráa hárið og er núna sólbrunnin alls staðar.
Ofbeldið gagnvart B-týpum sést svo greinilega í bakaríum landsins um helgar þegar B-týpunum stendur ekkert eftir til boða annað en vínarbrauðslengjur og grófustu rúnstykkin
Kl. 6:40
“SJÁÐU við fengum jólalímmiða og Frozen p��sl í skóinn”
Eins gott að þið kveiktuð öll ljósin í húsinu til að sýna mér þetta litlu skítar, þetta var mjög óljós skýring á hlutum sem ég keypti 🥰
@runargis Já bara vertu spenntur!
Fann þessa líka æðislegu bambus stigahillu (mín besta mögulega útskýring) þar sem handklæðin smellpassa á milli 👏🏻
Leysir mikið vandamálið við að hafa ekki handklæðaofn
Vona að þessi óspennandi lausn hafi glatt þig jafn mikið og mig 🤩
Er maður einhvern tímann að bregðast krakka sjálfum sér eins mikið og þegar maður fer sjálfviljugur upp í rúm fyrir kl. 21, sleppir því að borða ísinn sem maður á í frysti og hápunktur dagsins var að finna nýja útfærslu á að þerra handklæði á heimilinu??
Ég: “45.000 kr fyrir þyrluflug að gosinu? Neinei ég get nú labbað þetta!”
Líka ég: Kaupi útivistarfatnað fyrir 50.000 kr í 66 gráður norður fyrir gönguna að gosinu
Seinni hálfleikur hafinn: skipta jólagjöfunum fyrir alla 🥰🥰🥰 Einu númeri stærra, einu númeri minna, annan lit og í einni búðinni má ég bara finna eitthvað sætt 🥰🥰🥰
Besta við að vera landsbyggðartútta búsett á höfuðborgarsvæðinu er að fá símtal frá foreldrunum, nágrönnunum, æskuvinunum og ömmum þeirra í heimabænum 22. des til að biðja mann um að “skjótast að sækja eitt smá fyrir mig”
Besta við að vera landsbyggðartútta búsett á höfuðborgarsvæðinu er að fá símtal frá foreldrunum, nágrönnunum, æskuvinunum og ömmum þeirra í heimabænum 22. des til að biðja mann um að “skjótast að sækja eitt smá fyrir mig”
@Kamillae Einu sinni mætti vinur minn, atvinnumaður í íþróttum, í eftirpartý til mín, afþakkaði pizzu sem við hin vorum að borða og skóflaði frekar í sig 5 avocado og 3 banana.
Seinna um nóttina ældi hann svo upp um alla veggi, tveir veggir voru alveg grænir.
Við fjölskyldan höfum oftast verið bara fjögur saman á aðfangadagskvöld, alltaf hefur mamma sagt öllum að fara í sitt fínasta púss og hlusta á messu.
Undanfarið hefur hún talað mikið um að aðfangadagskvöld í ár verði kósýfatajól út af Covid.
Veit þá hvaðan ég fæ rökhugsunina.
Við @ingileiff vorum að gefa út barnabókina Vertu þú! sem er óður til fjölbreytileikans. Hugmyndin er að öll börn geti speglað sig og sína sjálfsmynd í bókinni. Eitthvað sem okkur hefur þótt skorta á íslenskum barnabókamarkaði 🌈