Návígi (EP2) Bjarki Gull & Mennskan
Nýr þáttur var að droppa 🔥
Meðal efnis: Siggi Jóns, Graham Souness, Arnar Grétars, Alex Ferguson, van Bronchorst, Landsliðsferill A&B, Lee Sharpe, Mark Hughes, Brazil Ronaldo, Jerry Maguire, Rod Stewart, Eiður Smári & Arnór og margt margt fleira
https://t.co/WYwqqO0lS9
Nýtt hlaðvarp á gömlum grunni!
Kominn er í loftið nýr og brakandi ferskur þáttur af Návígi- vel virtu hlaðvarpi sem fyrst leit dagsins ljós árið 2018. Umsjónarmaður, sem fyrr, er Gunnlaugur Jónsson en í þessari seríu er honum til halds og trausts, Hjörtur Hjartarson.
Sú sería sem er á leið á öldur ljósvakans er einskonar hliðarverkefni frá sjónvarpsþáttaseríunni, A&B sem nýverið var sýnd á Stöð 2 og sló heldur betur í gegn. Fyrsti þátturinn heitir Akranes. Þar er farið um víðan völl og saga ÍA, Akraness, tvíburanna og félaga rifjuð upp.
Lokaþáttur A&B var á dagskrá Stöð 2 Sport og Stöð 2 í kvöld og það sem meira er hann er kominn inn á Stöð 2+ veituna.
Þátturinn nefnist ‘Finna fótboltann aftur’ og það er mikil saga hvernig tvíburarnir finna ástríðuna að nýju og gera upp við sig hvað þeir ætla að starfa við þegar verða ‘stórir’. Sjón er sögu ríkari.
Takk fyrir geggjaðar viðtökur og sterk viðbrögð.
@tomasfreyr@gullijons Stórkostlegir þættir, en Gulli er hægt að fá spinoff seríu þar sem Rósi Bigg og Kormàkur ræða út málin og vonandi slíðrar Kommi sverðið gagnvart SkagaRósinni í lok seríu?
A&B: EP3: ÚR BOLTA Í BISSNESS
Í kvöld fer í loftið þriðji þáttur af A&B. Þar kveður við nýjan tón, tvíburarnir eru komnir heim úr atvinnumennsku og fara að hasla sér völl í viðskiptaheiminum og koma víða við.
Þeir koma m.a að skemmtistaðnum Hverfisbarnum þar sem Bjarki kynnist framtíðarkonu sinni, fataversluninni Retro, veitingastaðnum DOMO, fasteignaverkefnum í Hafnarfirði, Reykjavík og á Akranesi. Í góðærinu fara þeir í útrás í Miami og Glasgow en það eru blikur á lofti og óveður í kortunum. Þeir halda áfram að spila og fara í KR 2003 en taka svo óvænt við þjálfun Skagaliðsins 2006.
Stillið inn á Stöð 2 Sport eða Stöð 2 í kvöld eða horft hvenær sem er á Stöð2+ veituna (þátturinn er þegar kominn inn á stöð2+)
Takk innilega fyrir frábærar viðtökur á fyrsta þætti A&B! Annar þáttur er á dagskrá í kvöld á Stöð 2 og Stöð 2 sport.
England er fyrirheitna landið í knattspyrnunni í lok níunnar og þar erum við í öðrum þætti.
Arnar fer til Bolton og þaðan er hann keyptur til Leicester fyrir metfé. Bjarki stefnir líka á England en fer aðra leið í átt að því markmiði, fyrst með viðkomu hjá Brann í Noregi og þaðan heim til Íslands og verður þar hluti af fyrsta Íslandsmeistaraliði KR í 31 ár. Það sem einkennir knattspyrnuferil Arnars og Bjarka eru einmitt þessar miklu hæðir og lægðir og við fáum að sjá þær ljóslifandi í þessum þætti.