Hefur ESB týnt 2,8 milljörðum evra?
Eftir COVID-faraldurinn stofnaði Evrópusambandið Endurreisnar- og viðnámsþróttarsjóðinn (Recovery and Resilience Facility – RRF), stærsta einstaka fjárfestingarsjóð í sögu sambandsins. Heildarrammi sjóðsins var 724 milljarðar evra og var hann fjármagnaður með sameiginlegri lántöku ESB á fjármálamörkuðum. Aðildarríkin bera á endanum ábyrgð á endurgreiðslu skulda sjóðsins í gegnum framtíðartekjur og framlög til fjárlaga ESB. Í byrjun árs 2026 hafði um 577 milljörðum evra verið úthlutað.
Ólíkt hefðbundnum styrkjakerfum ESB voru greiðslur úr sjóðnum ekki byggðar á raunverulegum kostnaði verkefna. Þess í stað fengu ríkin greitt þegar þau sýndu fram á að fyrirfram skilgreindum áföngum og markmiðum hefði verið náð. Markmiðið var að auka sveigjanleika og hraða framkvæmdum.
Ný skýrsla Endurskoðunarréttar ESB hefur hins vegar vakið spurningar um gagnsæi og eftirlit með sjóðnum. Samkvæmt skýrslunni skortir upplýsingar um raunverulegan kostnað verkefna, hverjir séu endanlegir styrkþegar og hvaða árangur hafi náðst. Endurskoðunarrétturinn telur því erfitt að meta hvort fjármunirnir hafi verið nýttir með réttum hætti. Hann varar jafnframt við því að sama fyrirkomulag verði notað í næstu langtímafjárlögum ESB.
Evrópska saksóknaraembættið, European Public Prosecutor's Office (EPPO), hefur hafið rannsókn á hugsanlegri misnotkun fjármuna úr sjóðnum. Samkvæmt ársskýrslu EPPO fyrir árið 2024 voru í árslok 307 mál til rannsóknar sem tengdust RRF-sjóðnum. EPPO metur hugsanlegt tap geta numið um 2,8 milljörðum evra (yfir 400 milljörðum króna), en niðurstöður liggja ekki enn fyrir.
Mjög áhugavert viðtal við Eld Ólafsson í Silfrinu. Áhugavert að heyra kunáttumann tala fyrir raunsæi í orkumálum og á sama tíma mikil tækifæri Íslands. Þetta er umræða sem hefur alltof lengi verið í gíslingu draumóra og óskhyggju.
https://t.co/ddB157XpxC
Fréttatími RÚV í kvöld:
1. Gosið og af hverju er ríkistjórnin ekki búinn að setj harðari reglur😡
2. Trump bad
3. Leikskólar en alveg (viljandi) skautað framhjá meirihlutanum sem ber alla ábyrgð en RÚV gerði þeim greiða og setti umræðuna í það horf sem þau vilja: mönnunarvandi👏
Getum við fengið Helga og Sölku í heimsókn á hverjum laugardegi þar til samkomubannið er búið. Og farið svo á eina risa tónleika með þeim þegar Víðir segir go? #heimameðhelga
#SuperBowl vikan officially byrjuð. Ekkert eðlilega spenntur. Ætla að vera skemmtilegar Super Bowl facts hérna á þessum þræði alla vikuna. Fylgist með 😬✌️ #NFLÍsland
Fjöldi umsagna:
- Breyting klukkunnar: 791
- Veggjöld: 997
- Framtíðarfyrirkomulag fjármálakerfisins í landi þar sem fjármálakerfið fór á hliðina með gríðarlegu tjóni fyrir 10 árum: Núll 0⃣
Magnað að það séu fimm íslenskir þjálfarar með lið á næsta HM í handbolta og enn magnaðra að þessir fimm komu að því að setja sex lið þangað! #TeamIceland#VikingClap