@hillldur Ég myndi fara ber að ofan í sund, síðan út að dansa og skilja eftir drykkinn minn á borðinu á meðan ég dillaði mér við tónlistina, svo myndi ég fara út að ganga um miðja nótt með tónlist í eyrunum og loks sofna undir berum himni með @fridapals minni ❤️
@olofanna @fridapals Fann uppskriftina á Vegan jól - uppskriftir og ráð. Prófaði þrjár en fannst þessi best. Ég vafði gulrótunum í Noriþara og bakaði í salti í 1,5 klst á 200 gráðum. Skar í þunnar sneiðar og lét í vökva í 1-2 daga. Vökvinn: 2tsk liquid smoke, 1tsk sykur, smá vatn og dill 👌🏼
Nýjasta leiðin til að bonda við litla stóra barnið mitt (11 ára) er að ég fékk að followa playlista sem hann bjó til og er að vinna með á Spotify sem heitir btw "Brutal" 🙃❤️
#korteríungling
@fridapals @disadisadisa@annelibjorns Þetta er ennþá svo fáranlega fyndið! Ég segi sko reglulega frá þér og þínum heimboðum í vídjógláb sem var bara vídjógláb og ekkert meir! LOL! 😂
@logipedro101 Við Ivar tókum einmitt einn hring áðan bara til að sjá úrvalið. Erum alveg frekar sátt við þetta! Gott að fá hverfisbúð aftur svona í næstu/sömu götu!
Það er einhver í vinnunni minni sem snýr alltaf klósettpappírnum við þegar ég set hann rétt á inná klósetti! Ég hélt ég væri að vinna með eintómum snillum en þarf greinilega að endurskoða álit mitt þar það leynist einhver algjör vitleysingur hér innanhúss! 😐