Þarna komum við auga á Ketil hæng, hinn mesta vin Þórólfs. Nei bíddu, hvað þykist hann vera að gera? Og af hverju eru svona margir með honum? Nú er hann að draga SVERÐ úr slíðtrfdcv
Þetta er nú eitthvað gruggugt. Þórólfur fer klárlega ránshendi um Finnmörk og þykist geta orðið konungur þar og í Hálogalandi. Svo hefur Þórólfur pottþétt sent Þorgils til Englands með ránsfenginn. #þórólfurvondi
Er með Faravið að herja í Kirjálalandi. Þorgils vinur minn (húskarl) fór í sendiför til Englands að kaupa föt og nauðsynjavörur fyrir fjölskylduna. Hér er sést Þorgils við kveðjustund á skipsstafni.👋❤️
Loksins, loksins. Í dag gaf Halli kong okkur sýslu Þórólfs í Hálogalandi. Við eigum líka að heimta skatt í Finnmörku. Einning fengum við Torg og allar eignir Brynjólfs. #pyngjanaðfyllast
Það er á vörum allra manna í teitinu að Þórólfur sé líklegur leiðtogi uppreisnar. Vorum líka að segja að Halla kong að Þórólfur sé hermikráka og haldi eftir hlut hans í skattheimtunni. #þorólfurvondi#hallikong
Minn heittelskaði vinur, Bárður, lét lífið fyrr í dag. Hvíldu í friði elsku vinur.😥 En ef við lítum á björtu hliðarnar hef ég erft öll hans auðævi ásamt Siggu Sand😉