Þetta mætti heimfæra á Ísland. Munum að það er hagur ákveðinna flokka að kjósendur séu illa upplýstir.
Við sjáum hvaða fólk kýs M, F, L o.s.frv. Við vitum um tengsl rasisma og skorts á menntun.
Við heyrum alveg í hundaflautunum og við vitum hvaða fólk hleypur í áttina að þeim.
@Ziggi92 þetta er samt stærra mál. Það er algjörlega sturlað að þessir menn mæta á "opið svæði" í framhaldsskóla, þar sem eru nemendur sem eru ekki lögráða og hafa ekki kosningarétt. Að mæta með dólg í framhaldsskóla er siðblinda. Það væri annað ef þetta væri Háskóli Akureyrar.
Væri til í að @5norri og félagar segðu okkur hvernig þeir ætla að vernda tungumálið. Hingað til hef ég bara heyrt þá amast við stöðunni en ekki koma með lausnir. Sem er viss vísbending um að málið snúist frekar um andúð á útlendingum, ekki raunverulegar áhyggjur af tungumálinu.
Ég væri til í kappræður þar sem þau mega gjamma hvort ofan í annað eins og mikið og þau vilja, þá myndi maður sjá betur hvernig manneskja frambjóðendurnir eru í alvöru.
@heidarkness Auk þess sat hann fyrir 6 árum ásamt örðum miðflokks félögum sínum á klaustursbarnum og sagði ýmis ljót og niðrandi ummæli um samstarfskonur sínar ásamt fleiri konum.