Klukkan er 19:54 og þessi vagn átti að koma kl 19:38 Hvernig væri að láta vita ef á bara að slá upp í kæruleysi og sleppa ferð, @straetobs ??? Fólk gæti kannski komist á klósettið í millitíðinni í stað þess að hanga í 30+ mínútur uppá von og óvon.
Jæja við erum komin á þann stað að fólk er byrjað að dumpa kisum við Kattholt því það er fullt. Alltof margar kisur að lenda á vergangi núna. Framboð er miklu meiri en eftirspurn. Við í sjálfboðaliðastarfi í þágu dýranna erum búin að vara við þessu. 💔💔
@arnarar@sandrasilfa Forsendur eru eftir sem áður hæpnar og allar litlar villur og orðalag þægilega þér í hag. Enginn sem ég veit um þiggur mæðra- né feðralaun. Engir foreldrar sem ég þekki gera allt nákvæmlega jafnt eða eru með sömu tekjur, kostnað og ábyrgð. Berjatínsla virkar aldrei raunsæ.
@arnarar@sandrasilfa Meðlagið er ekki "rúm 43 þúsund". Ekki eru allir löghemilisforeldrar mæður. Fólk fær ekki úrskurðað margfalt meðlag sem hirðir nær helming ráðstöfunarfjár hins. Mæðralaun heita mæðra- og feðralaun. Flest má bæta í þessu kerfi en hljómar ekki eins og sanngirni sé þér efst í huga.
@Hellil@feitur Bara pínd í kirkju til að fá að fermast. Fæðingarár 1975. Hefði sennilega feikað veikindi eins og þegar öll þurftu endilega á skíði. Kannski þessvegna sem minnið finnur ekki neina hefð fyrir þessu rugli. Ha, er gaslykt hérna 🙄
Var frekar mikið að treysta á þennan vagn og þetta gerist of oft og yfirleitt á versta tíma. Bæði hjá mér og syni mínum, sem erum stórnotendur með mikla trú á almenningssamgöngur. Verð pínu sár. Við trúum á þig og stöndum með þér, Stóri-Gulur! Ekki svíkja okkur 💔
Lendi svo iðulega í því að sá vagn @straetobs sem ég hef planað að nota, bara kemur aldrei og ekkert virðist til hans spurst, að það er hætt að virðast random óheppni. Nú er það 14.08 vagn nr. 14 Versló-Grandi við Langholtsskóla. Er bara eitthvað casually verið að sleppa ferðum?
Þau tvö lönd í Evrópu hvar er að finna minnstar umferðartafir eru Finnland og Eistland. Þau náðu þeim árangri með gríðarlegri fjárfestingu í vegakerfi og mislægum gatnam... djók. Þau fjárfestu massíft í almenningssamgöngum og virkum ferðamátum. Auðvitað.
@Hellil Amma mín flutti inn í nokkrar vikur þegar sonur minn fæddist. Það var eitthvað ofboðslega rétt við það, fannst mér. En það ætlaðist enginn til þess, hún bara mætti alveg grjóthörð með ullarleppa fyrir brjóstin mín og fullt af nammi í veskinu 🤣
@Hellil Þetta mál er eins og laukur, það er rangt í svo mörgum lögum. Stórslys sem einn skitinn, slembivalinn rýnihópur hefði getað stoppað á punktinum. "Fokkar enginn í grísnum. Okbæ."