Er þetta ekki planið? (Afsakið orðbragðið) Að draga úr þessum hækkunum sem "útspil" til að koma í veg fyrir að kjarasamningar losni og kenna svo aðilum vinnumarkaðarins um þegar ríkissjóður verður ekki hallalaus.
Spunarokkur ríkisstjórnarinnar var snúinn í gang strax morguninn eftir kosningar. Nú á að spinna þann þráð að afgerandi höfnun á aðild að ESB sé einhvernveginn ákall um meiri samruna í gegnum EES.
Ekk er það nú líklegt til að sameina klofna þjóð.
Horfi á Eirík Bergmann fabúlera um Evrópumál í kosningasjónvarpi Sýnar.
Hann skilur ekkert í að D séu ekki fylgjandi ESB aðild eins og hægriflokkar víðast í Evrópu.
Kemur ekki auga á augljósa svarið; Við erum með EES samninginn, ólíkt öðrum.
Einn dagur í að verði kosið og þeir sem tala fyrir Nei tala um málefnin á meðan þeir sem tala fyrir Já tala um fólkið Nei-megin.
Þau sem eru enn óákveðin spyr ég; Hvor hliðin heldur þú að hafi betri málstað að verja?
Rök margra fyrir inngöngu í ESB virðist vera styrkirnir. Þó við horfum framhjá því að við yrðum alltaf nettó greiðendur (hef ekki heyrt neinn hrekja það) og við því að styrkja ESB en ekki öfugt.
Eru rökin þá að segja já að við gætum mögulega kreist peninga út úr fátækari löndum?
Undanhaldið er hafið. Ég er búinn að spá því í ca. 2 mánuði, frá því að ég sá hvernig umræðan og stemmningin í þjóðfélaginu var að þróast, að hætt yrði við ESB kosninguna. Núna er Viðreisn byrjuð að undirbúa afsökun fyrir því. Aðra en að þau haldi að þau fái +70% nei.
Það eru allt þekktir einstaklingar sem hafa haldið uppi gagnrýni á inngöngu Íslands í ESB. Þorgerður Katrín hefur hins vegar kosið að fara undan í flæmingi og svara með skætingi. Ef hún hefði betri málstað að verja, væri hún þá ekki málefnalegri?
Treystir hún ekki þjóðinni? Eða hvers vegna er hún að tala niður niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu sem hefur ekki enn farið fram? Ef við sem gagnrýnum ESB erum málpípur Pútins, hvers vegna mætir hún ekki í viðtöl til annarra en hirðmeistara stjórnarinnar og svarar þessum málflutningi til dæmis í Spursmál þar sem von er á gagnrýnum spurningum og raunverulegri blaðamennsku?
Hvaða orðaleppi kemur kennarasambandið með um OECD? Eitthvað svipað og um viðskiptaráð? "Grunnhæfni íslenskra nemenda til náms hefur hrakað mjög undanfarna tvo áratugi [...] að mati Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD)"
Það er farið að verða augljóst að planið var að gera son Ölmu Möller að krónprinsi Samfylkingarinnar.
Hann hefur átt að koma, fella Ásdísi af stalli og vera krýndur krónprins í kjölfarið.
Fyrst Jysk fundurinn svo þetta. Örvæntingin eykst eftir því sem markmiðið verður fjarlægra.