Íslenskt fyrirtæki, sem framleiðir nikótínpúða hérlendis, var með tekjur upp á fleiri hundruð milljóna króna eftir að hafa margfaldað söluna milli ára.
„Fjármálafyrirtæki eru þegar byrjuð að prófa sig áfram með lausnir á borð við okkar og við teljum að þau muni auka þá notkun hratt á næstu misserum til að dragast ekki aftur úr,“ segir forstjóri Lucinity.
Íslenskt lyfjaþróunarfélag, sem heldur á verðmætu einkaleyfi, var með tekjur upp á fleiri hundruð milljónir króna í fyrra og megnið af því var hreinn hagnaður.
Í þessari viku:
📰 Noona skoðar flöt á samstarfi við erlend fjarskiptafélög
📰Orkuskortur takmarkar tækifæri í gagnaiðnaði
📰Formannsefni slær nýjan (eða gamlan) tón í innflytjendamálum
📰Enginn miðill skilar merkjanlegum hagnaði án styrkja
📰Dugar ekki lengur að líta á Kauphöllina sem óvirkan innvið
Lengi var litið svo á að kauphallir væru hlutlaus vettvangur fyrir öflun fjármagns og ótengdar þeim pólitísku áherslum sem ríkja hverju sinni. Þetta hefur breyst á síðustu árum. Hvað þýðir það fyrir Ísland?
Hópur Íslendinga sótti ráðstefnu um stafræna innviði í Washington í byrjun september. Ráðstefnan sjálf var í raun aukaatriði en tilefnið var nýtt til að skipuleggja fundi með lykilaðilum á þessu sviði innan bandaríska stjórnkerfisins.
„Það sem gerðist á fyrri hluta ársins breytir því ekki að DEI er áfram meginstraumur í atvinnulífinu og við erum þar með gagnadrifna heildarlausn,“ segir stofnandi Öldu Solutions.
Fréttabréfið í þessari viku er fullt af fjölbreyttu efni um viðskipti, nýsköpun og efnahagsmál.
*Tekjur af gagnaiðnaði standa brátt undir þriðjungi af heildartekjum Farice.
„Ef þessar tekjur væru ekki til staðar myndi kostnaðurinn leggjast á almenning.“
*Íslenskt tæknifyrirtæki naut slíkrar velgengni á seinni hluta síðasta árs að vandfundin eru viðlíka dæmi.
Rafmyntafyrirtækið Bit Digital hefur á skömmum tíma skapað sér árlegar tekjur upp á fleiri milljarða króna með því að selja reiknigetu til þróunar á gervigreind. Fyrirtækið hefur hins vegar varað við því að innleiðing á gervigreindarreglum ESB geti haft neikvæð áhrif.
Markaðurinn ofmetur fjárfestingagetu sjóðanna til framtíðar
Sigurbjörn Sigurbjörnsson, sem stýrði SL Lífeyrissjóði í 28 ár, telur að auknar útgreiðslur lífeyrissjóða kunni að leiða til þess að sjóðirnir minnki hægt og bítandi stöður sínar á innlendum hlutabréfamarkaði.
Hluthafinn kafar einfaldlega dýpra. Hér er ýtarlegt viðtal við Róbert Wessman þar sem hann sendir skortsölum skýr skilaboð: Gangið hægt um gleðinnar dyr.
Veðmál sem tengist fjárfestingum í þróunarstarfi og regluverkinu í kringum hliðstæðulyf hefur komið Alvotech í kjörstöðu.