Hvernig datt mér í hug að þyggja boð í eurovisionmatarboð? Þetta er bara rétt að byrja og ég er að bugast inni í mér! Sé þvottafjallið heima hjá mér í hyllingum #12stig
Í staðinn fyrir herskyldu á Íslandinu góða, er þá ekki hægt að búa til einhversskonar foreldraskyldu?? Þar sem þeim, sem eiga barn í íþróttum eða öðrum tómstundum, er skipað í aðalstjórnir og/eða nefndir hjá sínu félagi í amk sex mánuði. Ár eftir ár er það sama fólkið sem sinnir þessum mikilvægu sjálfboðaliðastöðum meðan hinir skussarnir rífa kjaft yfir æfingagjöldum, þjálfurum, búningum, dósasöfnunum o.s.frv. Það sést nefnilega undir iljarnar á fólki þegar það heyrir orðið AÐALFUNDUR og venjuleg aðalfundastörf.