ALLIR AÐ DEILA FYRIR BREIÐHOLTIÐ.
Ef fram heldur sem horfir verður Aþena lögð niður í næstu viku. Ekkert bendir til þess að borgin vilji endurnýja samninginn og tíminn er útrunninn til að skipuleggja starfið fyrir næsta vetur. Stelpurnar eru þó staðráðnar í að berjast áfram og safna nú undirskriftum til stuðnings málinu. Læt undirskriftalistan fylgja í fyrstu athugasemd.
Aþena var stofnað sem félag til að berjast fyrir jafnrétti stúlkna í körfubolta svo þær njóti sömu tækifæra og drengir. Þetta er í raun stéttarbarátta því mikil stéttaskipting ríkir í penninga íþróttagreinum eins og körfubolta og fótbolta—ólíkt því sem þekkist í greinum þar sem kynin æfa saman, eins og frjálsum íþróttum og sundi. Þegar ég byrjaði að þjálfa lið dóttur minnar sá ég strax hversu lítil valdefling var til staðar fyrir stelpurnar sem voru fastar í lærðum vanmæti. Karlrembur sem báru ekki virðingu fyrir stelpum stóðu í vegi fyrir framförum, perrar sem leituðu inní þennan heim eins og rándýr á bráð og þroskasþjófar “devouring mothers” eins og konurnar/mæðurnar sem áttu að styrkja stelpurnar sínar gátu ekki gefið þeim eitthvað sem þær fengu aldrei gerðu það að verkum að status quo ríkt. En sem betur fer eru áhrif minni í Aþenu. "Í stað þess að væla erum við með stæla,” sagði valdefld dóttir mín þegar hún var 12 ára. Ég er sammála henni. Ég hef lagt metnað minn í að vera raunveruleg feminísk fyrirmynd -hávaxinn, hvítur, miðaldra karl sem neitar að vera fórnarlamb. Stelpurnar sem ég hef þjálfað síðustu tíu ár neita að vera fórnarlömb eru nú tilbúnar að taka við baráttunni. Út með það gamla, inn með gellurnar!
Fyrir um þremur árum hófum við starfsemi í Efra-Breiðholti þegar ljóst varð að valdeflandi aðferðir okkar voru nákvæmlega það sem Breiðholtið þurfti á að halda. Meistaraflokkur Aþenu þjálfar nú yngri kynslóðirnar í hverfinu okkar. Stelpurnar eru að læra að stór orð stjórnmálafólks í kosningabaráttu um stuðning við Breiðholtið eru tóm þegar kemur að raunverulegum aðgerðum. Ástandið í hverfinu versnar stöðugt og börnin eru jaðarsett á kerfisbundinn hátt. Stelpurnar læra einnig að ef þú gagnrýnir kerfið verða valdhafar sárlega móðgaðir og gera allt til að kæfa þig með grófum árásum.
Það er ljóst að reynt er að þagga niður í rödd Aþenu áður en hún verður of sterk.
Hvernig? Fyrir tveimur árum gerði Aþena samning við borgina um afnot af húsi í Austurbergi í þrjár klukkustundir á dag fyrir yngri flokka og eina og hálfa fyrir meistaraflokk kvenna. Markmiðið var að efla íþróttastarf í hverfinu, sérstaklega fyrir stúlkur.
Í dag sjáum við skýrt að við hefðum aldrei komist svona langt ef Eiríkur Björn Björgvinsson, fyrrverandi bæjarstjóri á Akureyri, hefði ekki tekið við starfi sviðsstjóra íþróttamála hjá borginni og keyrt okkar mál í gagn. (Love you EBB) . Þar til hann kom til var mikil andstaða við verkefnið okkar. Eftir að Eiríkur var kosinn á þing tóku aftur við öfl sem voru okkur andsnúin og hafa síðan gert allt sem í þeirra valdi stendur til að kæfa farsælasta nýsköpunarverkefnið til eflingar barna í Breiðholti síðustu áratugi.
Til að gera langa sögu stutta: Aþena hefur staðið sig stórkostlega. Í haust verða 130 stelpur að nýta þessar þrjár klukkustundir sem okkur eru skammtaðar. Borgin hefur viðurkennt að reksturinn okkar sé til fyrirmyndar en ætlar samt ekki að endurnýja samninginn án nokkurra útskýringa. Skilaboðin eru skýr: "Haldið þið kjafti, eða þið munuð finna fyrir því." Okkur er boðið að halda áfram án samnings og án raddar. Upphafleg gagnrýni okkar var aldrei opinber heldur beint til borgarinnar.
Gleymum ekki þeirri fáránlegu staðreynd að gamla hverfafélagið ÍR fékk nýja byggingu í Skógarseli sem kostaði milljarða þrátt fyrir að einungis um 10 krakkar úr hverfinu æfðu þar þegar við tókum við starfseminni í Austurbergi. En vill borgin meina að við stöndum ekki undir væntingum. WTF. Það væri gaman að taka umræðuna úr reykfylltu herbergjunum og leyfa almenning að heyra umræðuna sem á sér stað, þegar fulltrúar Aþenu mæta yfirvöldum.
Í dag rennur samningur við borgina út. Við erum búinn að liggja á borginni að klára samninginn. Skipulagning starfsins, ráðning þjálfara, virkjun krakkanna og fjársöfnun eru gríðarleg verkefni. Áhugaleysi borgarinnar gerir það ómögulegt að vinna langtímaplön. Það er ótrúlegt að borgin grípi ekki þetta tækifæri og styðji dyggilega við starfsemi Aþenu.
Undanfarnar vikur höfum við átt fundi við sviðsstjóra og formann íþrótta- og menningarnefndar borgarinnar sem eru sárlega móðgaðir og finnst ósanngjarnt að litla félagið Aþena sé ekki tilbúið að láta valta yfir sig. Þeim er sama um krakkana—þeir hugsa aðeins um sig sjálfa og pólitíkina sem þeir þjóna. Þetta eru stöðugar árásir á ört stækkandi rödd hverfisins: "Haldið kjafti eða þið hljótið verra af."
Þið heyrðu það fyrst hér. Ef borginn endurnýjar ekki samninginn við Aþenu á næstu dögum, deyr félagið í næstu viku. Guð blessi Breiðholtið.
https://t.co/iDfAPQ3ie1
@Juliusthor@hildursverris Ok"Óviturt" sko við seljum bankann en ef hann verður gjaldþrota þá tökum við hann aftur eða björgum honum. Óviturt fyrir hvern þá að taka fyrir að þeir sem kaupi bankann beri ábyrgð á eigin fyrirtæki?
@hildursverris Væri hægt að selja bankann með því skilyrði að ríkið bæri enga ábyrgð á bankanum ef hann færi á hausinn eða lenti í vandræðum? Bara alls engin ríkisábyrgð at-all er það hægt?
@hawk_attacks Sem Poolari þá óttast ég þennan leik eins og alla leiki sem reiknað er með auðveldum sigri, ég tek 1-0 sigur
pingpongsjálfsmark í uppbótartíma og hleyp með það ef það býðst En ef Liv tapar stigi/um þá verður það til að tryggja sixpence-inn í starfi í heilt ár amk. #pínuwinwin