Sigurjón Guðmundsson er með einhverja skemmtilegustu íþróttasögu seinni ára. Endar sem aðalmarkvörður Kolstad og norskur meistari. Enn einn príma markvörðurinn úr Digranesinu.
Kári Jónsson elskar flautukörfur gegn Keflavík. Á voddinu má einmitt finna nýjan þátt um körfuna hans gegn Keflavík 2018. Þessi þáttur, og þáttur um mark Atla Jó gegn Motherwell, verða sýndir eftir Stúkuna í kvöld en eru komnir á voddið.
Fyrsta þátt Augnablikanna, þátta sem ég vann með félögum mínum á Sportinu, má nú sjá á Vísi. Þar er fjallað um markið sem var dæmt af Tómasi Inga í úrslitaleik ÍBV og ÍA um titilinn 2001. Þetta eru 15 þættir sem verða sýndir, tveir í einu, á sunnudögum.
https://t.co/QEmvhYFiRl
21 stigi undir, 56-77. Elvar skorar 17 stig á þeim 07:12 sem voru eftir, þar af síðustu 8 stigin. Kláraði líka Ítali í fyrsta leiknum. Gaurinn er einfaldlega modern great.
Fer reglulega inn á https://t.co/gVD9ULk9fK og vonast eftir því að sjá tilkynningu um að verið sé að vinna í því að færa gömlu gögnin yfir á nýju síðuna eða eitthvað í þeim dúr. Ég hef ekkert séð og er farinn að hafa miklar áhyggjur. Vildi sýna ykkur dæmi um hörmung nyja vefsins
Þetta er farið að minna á covid-mótið fræga. Vinnum Ungverja í þriðja leik og svo er Elvar Ásgeirsson kallaður inn. Magnús Óli, Þráinn/Þrándur og Vignir Stefáns væntanlega í startholunum.