Ég grét í fyrsta skipti fyrir framan fjögurra ára dóttur mína í morgun því ég var mjög þreytt og mjög leið. Alveg hágrét. Hún gekk til mín, settist við hliðina á mér og sagði: "hættu að gráta mamma, ég nenni ekki svona væli".
Ef þið þekkið ungt fólk sem vill eyða vetri í stöðugum ævintýrum úti á landi- bendið þeim á Lýðflat. Þetta er geggjað dæmi og það er opið fyrir umsóknir! Enginn of gamall en 18 ára aldurstakmark! Ég myndi.
Búandi í afskekktu sjávarþorpi eru öll mín stefnumót hingað til; ókunnugur maður ferðast þvert yfir landið og býr hjá mér í nokkra daga. SOLID en mjög intense leið til að læra alltof mikið um einhvern á stuttum tíma.
Ef þið þekkið einhvern sem þarf að núllstilla sig og hugsanlega breyta lífi sínu til frambúðar- bendið viðkomandi á https://t.co/G1cZp9prQU - kannski ert það þú? Þetta er wild ride, til þess fallið að gera lífið bara aðeins betra.
Hvernig er best að breyta svarmöguleikum í könnun sem venjulega spyr hversu ánægð/ur ertu þannig hún sé meira inclusive. Er besta leiðin að skrifa hversu ánægð/t/ur ertu? Lítur eitthvað einkennilega út, eruði með tillögur?
@sunnevaelfars @dis_walker Guð þetta minnir mig á það að einhverstaðar er ég með lítinn kassa með hettupeysu frá þér sem hefur ferðast með mér milli heimila síðustu 7 árin 😅
Í dag útskrifaði ég 36 dásamlega nemendur úr Lýðskólanum á Flateyri, fyrsta hópinn minn sem skólastjóri. Fallegur dagur og ljúfsár. Það er erfitt að kveðja en það er bjart framundan hjá þessu flotta fólki sem tók stökkið út fyrir þægindaramman og breytti lífi sínu í leiðinni.