Luke Donald útnefndur fyrirliði Ryder Bikarliðs Evrópu eftir að Henrik Stenson var settur af í kjölfar þess að hafa gengið til liðs við LIV Golf.
https://t.co/VVAU601zbh
Henrik Stenson var sviptur fyrirliðanafnbót í Ryder bikarliði Evrópu og vann í kjölfarið sitt fyrsta mót á LIV Golf Invitational.
https://t.co/X4lr3NV1T7
Guðmundur Ágúst lék á pari samtals um helgina og lyfti sér upp um nokkur sæti frá því á föstudag er hann komst naumlega í gegnum niðurskurðinn á Irish Challenge á Áskorendamótaröðinni.
https://t.co/Bun99ZXuNK
Vindurinn lék nokkuð stórt hlutverk á Irish Challenge á Áskorendamótaröðinni í dag en Guðmundur Ágúst gerði ágætlega og lyfti sér upp um nokkur sæti fyrir lokahringinn á morgun.
https://t.co/WEaozdPFKJ
Henrik Stenson byrjaði vel á fyrsta hring LIV Golf Bedminster. Hann lék á 64 höggum eða á 7 höggum undir pari vallarins og leiðir mótið sem stendur ásamt Bandaríkjamanninum Patrick Reed.
https://t.co/OyLAS5DNLj
„Ég missti nær alla fuglasénsana mína í gær en í dag setti ég þá nær alla í,“ segir Guðmundur Ágúst Kristjánsson, sem slapp í gegnum niðurskurðinn á Irish Challenge í dag.
https://t.co/I9pSeauQvA
Þórdís Geirsdóttir er Íslandsmeistari, í flokki 50 ára og eldri, áttunda árið í röð. „Ég reyni að spila á hverjum degi. Ég held að ég hafi æft nóg fyrir lífstíð,“ sagði Þórdís í samtali við https://t.co/zrUHzDkrwP.
https://t.co/2xLwPr7CcX
Brooke Henderson frá Kanada er á 17 höggum undir pari og með tveggja högga forskot fyrir lokahringinn á hina Suður-Kóresku, So Yeon Ryu á Evian meistaramótinu, fjórða af fimm risamótum ársins.
https://t.co/6xcB9fsSTR
Perla Sól Sigurbrandsdóttir úr GR sigraði á European Young Masters en mótið, sem er fyrir kylfinga, 16 ára og yngri, hófst á fimmtudag og lauk nú fyrir skömmu.
https://t.co/Wkhwi67m9u
Ragnhildur og Hulda Clara komust ekki í gegnum niðurskurðinn að loknum þriðja hring á Evrópumóti áhugamanna sem stendur yfir í Frakklandi.
https://t.co/ExyocvPvrv
Perla Sól Sigurbrandsdóttir úr GR lék á pari Linna vallarins í Finnlandi á bæði fyrsta og öðrum hring European Young Masters og er í 2.-4. sæti fyrir lokahringinn.
https://t.co/GwOnmWEsy6
Brooke Henderson er með þriggja högga forskot inn í helgina á Nelly Korda frá Bandaríkjunum á Evian meistaramótinu, fjórða af fimm risamótum ársins en leikið er á Evian Resort í Frakklandi.
https://t.co/VKVE6hK2mi