Oft erfitt að lesa í skilaboðin sem koma frá íslenska landsliðsþjálfaranum um netheim frá norska garðskálanum hans. En get ekki betur skilið núna en að það sé betra fyrir Aron Einar að spila ekkert en að spila með Þór ef hann vill láta velja sig í landsliðið e.g. Isl-Lux Svk-Isl
Salah geggjaður leikmaður! Samt ekki langt síðan ég gat ekki horft á hann, hann var í grasinu við öll möguleg og ómöguleg tækifæri. Hvað breyttist? Getur verið að VAR hafi haft áhrif? Held við þurfum VAR í íslenska boltann asap.
Vel gert Skagamenn 👏👏 get ekki beðið eftir 16 okt :) orðið langt síðan ég átti erindi á bikarúrslitaleik, síðast var 31.08.1986 þá eftirminnilega vann ÍA þáverandi stjörnuprýtt Íslandsmeistaralið Fram
Mínus: samstuð missir jafnvægið ekki víti ekki spjald rangur dómur Plús: dómarar farnir að taka á dýfum eins og t.d í aðdraganda marks HK og í fleiri tilfellum. Að lokum,ekki hlusta á @GummiBen þegar kemur að þessu málefni held hann hafi aldrei séð dýfu 😀 finnuralltafsnertingu
Cry me a river. Erfið staða og erfitt verkefni? Ekki spurning, en er þetta ekki orðið fínt af þessum grátkór hjá landsliðsþjálfaranum/yfirmanni knattspyrnumála. Svona er staðan í dag deal with it and get on with the job https://t.co/XOHIBaBI4x
Hefði viljað sjá reynslubolta eins og Hannes klára þetta mót sem hann byrjaði. Spila ef óskað er annars styðja við og hjálpa yngri markmönnum ef þörf krefur. Aðeins 4 leikir/2 mán eftir. Hannes staðið sig mjög vel með landsliðinu en einnig hefur landsliðið gefið honum mjög mikið
Ísl -Þýs 0-0 06.09.03 er einn eftirminnilegasti landsleikurinn minn, þetta var eina skiptið sem ég og Krissi bróðir vorum saman í hóp, hann að koma inn í fyrsta skipti og svo átti eftir að koma á daginn að þetta var minn síðasti leikur fyrir Ísland. Vaktaskipti hjá okkur bræðrum
Uffff plat pressa og sýndar varnarmennska gengur ekki í A landsliði Íslands, hvað höfum við efni á mörgum lúxus leikmönnum í fyrstu 11? Mjög erfiðar 80 mín í dag. Byrjum næsta leik eins og við enduðum þennan, Áfram Ísland
Hér spilaði ég minn fyrsta leik með mfl fyrir 30 plús árum vorið 1989 ef ég man rétt vináttuleikur með mfl ÍA móti heimamönnum. Stóra spurningin er hinsvegar hvaða völlur er þetta og hvert er heimaliðið ?
@JohannArnason Nei þetta snýst ekki um það, þarna er verið að stöðva leikmann á óíþróttamannslegan hátt án þess að eiga nokkurn möguleika á boltanu skiptir ekki hvort hann hefði stöðvað hann með því að toga sparka lemja berja eða hrinda. Er oftast team varnarmenn en þetta átti skilið rautt :)
Ívar Orri flautar ekki víti á Fylki vel gert. Féll Pétur í gildruna? varnarmenn eiga ekki að renna sér inni í teig, en þýðir það að það sé víti ef sóknarmaður lætur sig falla nálægt þeim. Er þetta klókindi, svindl, léleg dómgæsla eða afleiðing umfjöllunar? Leitinaðsertingunni!
@OdinnSvan Bættu vítinu sem KA fékk móti Viking í þennan hóp. bara það að leikmenn vita að þetta verði skoðað þá hætta menn að vera klókir eins og að henda sér niður er kallað nú orðið