Teikningar frá 1966 sem sýna Reykjavík samkvæmt aðalskipulagi 1962-1983. Þær fylgdu grein í Morgunblaðinu þar sem „framtíðin“ með fullbyggðu skipulagi var skoðuð – á því fjarlæga ári 1983.
Meira um málið: https://t.co/8sul8y3lTm
Árið 1995 fylltist hópur ungmenna í Vestmannaeyjum kristnum trúarofsa og brenndi „ókristilega“ geisladiska. Hatari hefði alllíklega brunnið til kaldra kola þennan dag. #hatari#hatriðmunsigra#12stig https://t.co/D2cqO5HM07
„Spillingardans, spillingardans... gróðafíkn og nautnafans... kapítalistar andskotans.“
1. maí, Úkraína, 1968. Mynd via sovietvisuals. Textabrot eftir Dúettinn Plató.
Lesandi Lemúrsins skrifar: „Reyndi Ögmundur Jónasson að leika eftir Eiði Hóratíussona eftir David, þegar hann hitti Gorbatsjov á leiðtogafundinum 1986?“ https://t.co/NLD9nT0jsY
Brasilíski knattspyrnusnillingurinn Pelé slakar á við tökur á kvikmyndinni Escape to Victory árið 1981. Myndin var tekin í Ungverjalandi, sem þá var kommúnistaríki. https://t.co/9fAcn7Q0oS
Galina Bresnjeva, dóttir Leóníds Bresnjev, dansar uppi á borði skömmu eftir hrun Sovétríkjanna. Faðir hennar, sem sést á mynd í bakgrunni, sat við stjórn landsins frá 1964 til 1982. #mafs#sovétríkin#slettúrklaufum https://t.co/szWXDXHFZY
Vann Charles Manson í síld á Seyðisfirði sumarið 1963?
„Charlie, eins og hann var kallaður, vann í síld hjá Haföldunni og vakti nokkra athygli í bænum fyrir sítt hár og að yfirleitt voru tvær erlendar stúlkur með honum.“
https://t.co/QicX4ge6ml
Svona teiknaði krakki í Moskvu atburð í Októberbyltingunni sem hófst fyrir hundrað árum síðan. Í nóvember 1917 bað rússneskur barnakennari nemendur sína að teikna það sem fyrir augu bar á leiðinni í skólann. https://t.co/6K1ONIWO1z