FH heldur áfram að skrifa söguna og mæta stórliði Eintracht Frankfurt á heimavelli í 2. umferð Evrópubikars kvenna á morgun kl. 16. Við viljum auðvitað að þið horfið á Livey en svona leikur á skilið fullan völl. Mæta. Takk
Magnús Haukur Harðarson á mæknum. Þetta verður ekki betra.
@354Mani Við erum nokkuð ánægðir með gæðin hjá okkur en líka margt sem við þurfum að bæta. En við erum ungt fyrirtæki og heldur betur tilbúin til þess.
Hér er svo markið sem Þróttarar skoruðu í gær til að tryggja sér sæti í deild þeirra bestu að ári, ásamt lokaflautinu og bikarafhendingunni. Til hamingju Þróttur og takk fyrir okkur í Lengjudeildum kvenna og karla í sumar. 2027 verður enn stærra 🔥
Hér eru mörkin úr leik Selfoss og Hauka sem fram fór á föstudagskvöldið. Hjörtur Hjartarson og Jón Þór Hauksson lýstu því sem fram fór. Til hamingju Selfoss!
Það er ekki bara fótbolta og handboltaveisla um helgina en hin goðsagnakennda tónleikasveit Quarashi fagnar 30 ára afmæli með tónleikum í Laugardalshöll laugardaginn 19. september 2026.
Þú getur keypt aðgang að streyminu hér
https://t.co/Jbgfh305a1
Það voru skoruð 476 mörk í 132 leikjum í sumar í deildarkeppni Lengjudeildar karla. Hér eru þau 22 sem sköruðu fram úr í hverri umferð fyrir sig í Lengjudeildarmörkum karla. Hvaða mark finnst þér best?
Andrúmsloftið var spennuþrungið á blaðamannafundi Livey, Lengjudeildarinnar og ÍTF í höfuðstöðvum KSÍ í hádeginu. Bolli og Hjálmar lyftu reyndar stemningunni vel upp og Hjörtur Hjartarson stýrði fundinum af gríðarlegri fagmennsku.
Bara 2 dagar í þetta. Veislan er á laugardag og útsending hefst kl.15:15 - að sjálfsögðu á Livey.
Við fengum Hjamma og Bolla til að aðeins taka stöðuna á 100 milljón króna leiknum. Hvernig er stemningin í Dal draumanna og Rivertown? Eins og við var að búast var engin vitleysa töluð og bara gleði.
Horfðu á síðasta þátt af Lengjudeildarmörkum kvenna árið 2026. Magnús Haukur og Arnar Páll gerðu upp síðustu umferðina og tímabilið í heild. Veisla í Livey appinu, eða á https://t.co/96fpLUfq1z. Þú ræður!
Mark ársins átti Ísabella Kjartansdóttir leikmaður Völsungs. Hún er fædd árið 2011 og að mati sérfræðinga Livey átti hún mark ársins! Alvöru negla beint í Samúel. Takk. Einnig völdu sérfræðingarnir topp 5 mörkin en mark Ísabellu þótti skara fram úr.
Þjálfari ársins var valinn Dominik Ankers þjálfari Lengjudeildarmeistara Gróttu. Lítið til af myndum af honum skv. sérfræðingum. Bætum úr því á næsta ári í deild þeirra bestu.
Besti ungi leikmaður Lengjudeildar kvenna 2026 var Kara Guðmundsdóttir. Eins og Magnús Haukur orðaði það þá fangaði hún hug og hjörtu Vesturbæinga í sumar.
Leikmaður ársins í Lengjudeild kvenna var eins og áður hefur komið fram hún Lovísa Davíðsdóttir Scheving fyrirliði Gróttu. Vel að þessu komin enda vinnur Grótta deildina og Lovísa gríðarlega mikilvæg sínu liði.
Magnús Haukur og Arnar Páll fóru einnig yfir lið ársins í Lengjudeildinni 2026. Þar voru leikmenn frá Gróttu (5) og KR (3) í aðalhlutverki en Selfoss, FHL og HK eiga líka sína fulltrúa.
Valgerður Gríma Sigurjónsdóttir fékk nafnbótina mark umferðarinnar. Markið var gríðarlega mikilvægt og tryggði endanlega sæti KR í Bestu deildinni að ári.