Hér munum við deila reynslusögum af lögregluofbeldi.
Hvetjum ykkur til að pósta ykkar sögum undir #lögogregla
Einnig er hægt að senda á [email protected]
Mér var haldið þrífótbrotnum í fangaklefa í heila nótt og það liðu um 12 tímar þar til ég komst undir læknishendur og fékk verkjalyf.
Ég grenjaði alla nóttina í köldum svita og skjálfta.
Þeir héldu að ég væri að gera mér upp sársauka til að fá hjá þeim dóp.
#lögogregla
13/13
Ég reyndi að sækja rétt minn eftir þetta en mér var sagt að það væru ekki sömu reglur á landamærunum og ég ætti bara að “move on og gleyma þessu.”
Ég mun aldrei gleyma þessu.
#lögogregla
Aðsend saga, þráður 1/?
Ég var á leið heim frá London með vinum mínum eftir skemmtilega helgarferð.
Á leið út úr fríhöfninni erum við tekin til hliðar og gerð leit í farangrinum okkar. Þar erum við spurð ýmissa spurninga.
#lögogregla
12/?
Ég var orðlaus, það var enginn sem beið mín fyrir utan.
Einum úr hópnum var haldið í 3 daga.
Hann hafði verið settur í skanna og þeir talið sig sjá eitthvað.
Þeir fylgdust með honum hafa hægðir allan tímann. Það kom í ljós að það sem þeir sáu var sushi.
#lögogregla
11/?
Hann segir mér að úti sé fólk sem bíði mín til að handtaka mig og fara með mig upp á heilsugæslu.
Hann rígheldur í mig alla leið að dyrunum og snýr sér svo að mér og segir “þessari rannsókn er formlega lokið.”
Hann segir mig að hypja mig burt.
#lögogregla
10/?
Á þessum tímapunkti er ég farin að heyra í vinum mínum öskra í næsta herbergi, öll vörum við orðin mjög þreytt á þessu rugli.
Eftir 4 klukkustundir segir lögreglumaðurinn mér loks að nú sé kominn tími til að fara upp á heilsugæslu í skanna.
#lögogregla
9/?
Þarna spyr ég hann til nafns sem hann neitaði að segja mér.
Þegar ég krafði hann um það þá sagði hann að vegna personuverndar gæti hann ekki sagt mér það.
Eftir stöðugar ásakanir, strippun og skoðun í öll göt er það hann sem nýtur personuverndar.
#lögogregla
8/?
Aftur kemur lögreglumaðurinn inn og heldur uppteknum hætti. Segir mér að þetta verði gert auðveldara fyrir mig ef ég viðurkenni þetta bara, hann hafði fundið út að ég væri í hljómsveit og sagði að fólk í hljómsveitum notaði öllu jafna vímuefni.
#lögogregla
7/?
Aftur sagði ég honum að ég væri alveg til í það bara svo lengi sem ég fengi að komast þaðan.
Þá fer hann fram og inn kemur kona sem segir mér að afklæða mig, hún fer svo bæði upp í leggöng og endaþarm hjá mér, þegar ekkert fannst fékk ég að fara í fötin mín.
#lögogregla
6/?
Ég bað hann endilega að gera það þar sem ég vildi losna þaðan sem fyrst. Hann sagðist þá ekki ætla að hlífa mér heldur myndi öll heilsugæslan og þau sem stæðu frammi í Leifstöð fá að sjá mig í járnum og að það yrði auðmýkjandi fyrir mig.
#lögogregla
5/?
Lögreglumaðurinn segir við mig að hán viti að ég sé með vímuefni innvortis og ég skuli gera sjálfri mér þann greiða viðurkenna það. Ég hélt nú ekki, enda var ég saklaus.
Þá segir hann mér að hann ætli að fara með mig í járnum á heilsugæsluna til að sanna það.
#lögogregla
4/?
Það voru að minnsta kosti fjórir starfsmenn sem skiptust á að sitja yfir mér á meðan lögreglumaður for á milli herbergja og yfirheyrði okkur. Þessir starfsmenn reyndu að beita “good cop - bad cop” aðferðinni á milli þess sem við vorum yfirheyrð.
#lögogregla
3/?
Mér þótti þetta svo fráleitt að ég byrjaði að hlægja.
Ég fékk ekki að hringja í neinn til að láta vita, en á þessum tíma var ég i hljómsveit og átti að mæta beint í myndatöku með bandinu eftir að við lentum.
#lögogregla
2/?
“Hvað voruð þið að gera?” “Var mikið djamm?”
Það eru tekin strokusýni af höndunum okkar og erum við svo öll sett í sitthvort herbergið.
Við tók fjögurra klukkutima yfirheyrsla þar sem þau vildu meina að við værum að smygla vímuefnum innvortis.
#lögogregla
7/7
Þetta voru eingöngu fordómar fyrir heimilislausum.
Mér fannst þetta ömurlegt en vissi ekkert hvað ég gat gert. Ég hef ekki hugmynd um hvort þau komu að lokum. Þetta var upphafið af vantrausti mínu gagnvart neyðarlínunni og lögreglunni.
Aðsend saga. Þráður 1/?
Ég bjó einu sinni á Bárugötu og ferðaðist allt með strætó, ég gekk þessvegna í gegnum Ingólfstorg daglega. Eitt sinn var ég á leið heim úr vinnu og sé þá konu liggjandi á bekk ásamt manni með hækjur, ég hafði oft séð þau áður. Líklega voru þau heimilislaus
6/?
Ég beið hjá þeim í u.þ.b 40 mínútur en þurfti þá að fara. Þegar ég geng í burtu sé ég að maðurinn er að stoppa annan mann til að biðja hann að hringja í 112. Ég vissi ekki hvað ég átti að gera, viðbrögð neyðarlínunnar gerðu mig mjög sorgmædda.
5/?
Þau tóku ákvörðun um að hundsa þetta þar sem þau voru "góðkunningjar lögreglunnar." Ég segi þeim þá að konan gæti þess vegna verið dáin hérna, varir hennar væru bláar og við værum búin að reyna allt. Þá sagðist manneskjan ætla að senda bíl.
4/?
Manneskjan hjá neyðarlínunni spurði mig með hverjum hún væri og ég gaf upp nafn mannsins, viðbrögð þeirra voru til skammar. Manneskjan þekkti til mannsins og gat getið sér til um hvaða kona þetta væri.
3/?
Ég hringdi í 112 og þar var ég spurð hvað konan héti, ég man ekki hvort maðurinn gat sagt hennar nafn en hann gaf mér sitt nafn. Ég sagði við neyðarlínuna að það væri líflaus kona hjá mér og það væri ekki nokkur leið að vekja hana.
2/?
Maðurinn hóaði í mig og bað mig um að hringja á sjúkrabíl því konan var hreyfingarlaus og honum tókst ekki að vekja hana. Þegar ég leit á hana sá ég að varirnar hennar voru bláar, ég hafði oft séð hana og hún var alltaf hress. Ekki í þetta skiptið.