Hvernig er ég fyrst núna að frétta að Tina Turner sé látin?? 😢
BTW, af hverju er hjónaband hennar og Ike alltaf aðalatriðið í umfjöllun um hana? Hún skildi við manngerpið árið 1976, for Pete's sake!
Daglegt strögl einhverfs ADHDings er að reyna að taka til en enda í staðinn með meiri óreiðu. Í dag tók steininn úr þegar ég endaði á að (mögulega) eyðileggja uppþvottavélina.
En, þúst, vIð ErUm ÖlL sMá [insert skynseginleika].
@olafurpatrick @HaukurBragason Ég veit ekki hvernig þetta var hjá vinnandi fólki en í mínu ungdæmi byrjaði skólinn aldrei fyrr en eftir þrettándann. Nú er búið að stytta bæði jóla- og sumarfrí í skólum 🤨
Gerði heiðarlega tilraun til að panta tíma hjá lækni í morgun. Hringdi á slaginu 8, var nr. 8 í röðinni, beið í 6,5 mín. og fékk ekki tíma.
Eitthvað hérna gengur ekki upp.
@WhisperofPages@AutisticCallum_ I've heard this too (apparently it's a strategy that's used on a global scale) and I don't get it. Like, at all 🤷♀️ It's one of the reasons I gave up on Tinder...
@EinarKF@IngviHrannar Þannig að sérfræðingar í svefni hafa rangt fyrir sér? Skv. þeim er birtuaukningin í núverandi ástandi um 4% en væri um 13% ef klukkan væri rétt, miðað við vökutíma fullorðinna.
@EinarKF@IngviHrannar Nema hvað að við erum fjölmörg sem ekki er hlustað á þegar við segjum frá því hvernig líkamsklukkan aðlagast EKKI röngum tíma. Við GETUM ekki farið bara fyrr að sofa og líkaminn NEITAR að vakna á þeim tíma sem samfélagið krefst. Það er EKKI góð lýðheilsa.
Kötturinn minn tók á móti mér með öskrum eftir 5 vikna aðskilnað, þangað til mér tókst að sannfæra hann um að ég væri ég. Nú eltir hann mig um allt en er smám saman að jafna sig á aðskilnaðarkvíðanum.
Hver segir svo að köttum sé alveg sama um okkur?