Ég gríp inn í þegar málfar fólks er orðið hættulega slæmt. Lyfta þarf grettistaki hvað varðar vandað orðalag og góða stafsetningu. Ég er á vakt, og sef aldrei.
@Birgiromar @AronMimirx Sæll. Hann gæti þá mögulega markað sér ákveðna sérstöðu á þessum vettvangi.
Ég má til að benda á eitt. Enska orðinu flawless má snara á skemmtilegan hátt yfir á íslensku með því að nota t.d. orðið flekklaus eða gallalaus. Að öðru leyti er stíllinn þinn fínn.
@tommisteindors Stór stafur er alltaf ritaður í upphafi máls og í nýrri málsgrein á eftir punkti. Punkt skal setja á eftir málsgrein, enda felur það hugtak þá einnig í sér svo kölluð málsgreinarígildi.
@karafknkristel Þegar sérnöfn eru tvíliðuð og liðirnir tengdir með bandstriki eru báðir liðirnir með stórum upphafsstaf, til dæmis Norður-Kórea, Fjalla-Eyvindur, Litla-Hraun.