@unagudlaug Kannast við þetta! Yngri hér tekur samt annan pól í hæðina, hún lítur svo á að stóri bró hafi bara notað hlutina á meðan beðið var eftir henni, réttmætum eiganda
Tveggja ára dóttirin grét sáran í kvöld því ég fann ekki nashyrningasnuðið sem að hennar mati var eina rétta snuðið fyrir nóttina. Ég kannaðist ekkert við þetta snuð og allt var að fara á versta veg þegar snuðið fannst óvænt. Með mynd af einhyrning á…
Palestínska þjóðin hefur um árabil kallað eftir alþjóðlegri sniðgöngu gagnvart ísrael þar til hernámi, landráni, aðskilnaðarstefnu og þjóðernishreinsunum verður hætt. Það er sú aðferð sem palestínska þjóðin hefur óskað eftir stuðningi við og að þykjast vita betur er yfirgangur.
@jtebasile Fór að gráta því maðurinn minn fékk meira nammi í sinn bragðaref en ég í minn. Endaði með að hann fór inn aftur, aumingja afgreiðslustúlkurnar sýndu þessu mikinn skilning og hann fékk nýjan handa mér. Sidenote, ég var ólétt.
@984535b1334546d Tja, það var heill vinnudagur fyrir höndum og spurning hversu viðeigandi það væri að vera í hvítum spítalabolnum með háu ljósin á allan daginn...
Það eru margar hetjudáðir drýgðar á hverjum degi, en konan sem gleymir brjóstahaldara eftir ræktina og þarf að troða sér í þvalan, sveittan íþróttatoppinn eftir sturtu, hún er sönn hetja
Hápunktur dagsins var klárlega að hrópa yfir allan sjúkrahúsganginn til hóps vinnufélaga minna að: “jag har kex på mitt rum”. Side note: hér á skáni er kex borið fram sjex, og líklega heyrðist j-ið ekki greinilega hjá mér...