Þessir strákar, skaðaminnkandi samtök, rauði krossinn og FULLT af öðru fólki vinna hörðum höndum til að tryggja öryggi vímuefnanotenda. Hvenær ætla stjórnvöld að grípa andskotans boltann og tryggja öryggi notenda með lagabreytingum??
Þið megið endilega hjálpa mér að deila 🫶🏻
Á mánudaginn verða tónleikar til styrktar Frú Ragnheiðar og aðra skaðaminnkunar verkefna hjá Rauða krossinum. Það er orðið uppselt á tónleikana en þeir verða sýndir í beinni á RÚV.
Ég grátbið stjórnvöld um að stíga varlega til jarðar í aðgerðum sínum gegn ópíóðafaraldrinum og hafa skaðaminnkandi nálgun að leiðarljósi frekar en harðari refsistefnu og bönn sem skila ekki tilætluðum árangri. Byrjum á að efla forvarnir, snemminngrip og úrræðin sem eru í boði.
Naloxone er mótefni gegn ópíóíðum/morfínlyfjum (t.d. Contalgin, Oxycontin, Fentanyl og Heróín).
Ópíóíðainntaka yfir þolmörk getur valdið öndunarstoppi, Naloxone getur snúið því ástandi við.
Enginn skaði fylgir því að gefa lyfið sé þess ekki þörf.
Elsku fólk!
Frú Ragnheiður dreifir naloxone frítt. Naloxone getur komið í veg fyrir ofskömmtun á ópíóðum og er ótrúlega auðvelt í notkun. Það er svo mikilvægt að vera örugg og naloxone bjargar mannslífum ❤️
https://t.co/3f3reuzOx8
Margir notendur eru ekki tilbúnir eða hreinlega vilja ekki fara í meðferð og það er þeirra val. Ef við skilgreinum bata einungis sem edrúmennsku erum við hætt að fylgja skaðaminnkun, er það ekki?
Lyfjaskömmtun hefur gefið notendum nýtt líf.
„Við höfum misst samband við einstaklinga sem hefur reynst erfitt að ná í. Þetta eru oft einstaklingar sem eiga erfitt með að nýta sér þá þjónustu sem er í boði í því formi sem hún er,“ segir Kristín. https://t.co/PhzyXDlP2V
Ylja er eina virka neyslurýmið sem sinnir vímuefnaneytendum. Mikið vona ég að stjórnvöld vinni hratt og vel að því að tryggja að þessi nauðsynlega skaðaminnkandi starfsemi haldi áfram og komist í staðbundið húsnæði þar sem neytendur þurfa ekki að flýta sér og bíða úti í kuldanum.
Ég er brjáluð. Annar bruni í úrræði sem stjórnvöld hafa EKKERT eftirlit með eftir ítrekaðar aðvaranir frá málsvörum, mannréttindasamtökum og fleirum í meira en áratug.
Spurði heilbrigðisráðherra í gær út í úrræðaleysið sem heimilislaust fólk glímir við og hvort það sé eitthvað samtal í gangi að gera Ylju að staðbundnu neyslurými.
Við erum með fleiri bílastæðahús en neyðarskýli og neyslurými. Það er galin forgangsröðun.
https://t.co/sCeLdCuHMf
1/6 Þegar við heyrum að fólk er að nota bílakjallara, bókasöfn, almenningsklósett, stigaganga og ofl til að sofa,til að leitast í öryggi og sinna grunnþörfum þá verðum við að staldra við og finna lausnir því að þarna eru aðstæður sem eru lífshættulegar.
Margir fjölmiðlar verða að byrja að tileinka sér fallegri orðanotkun gagnvart fólki sem nota vímuefni.Að nota orðin „sprautufíkill”og „dópisti” er mjög mikil brennimerking og gildishlaðin orð. Fólk sem notar vímuefni eru mjög jaðarsett og þetta ýtir þeim lengra út á jaðarinn ❤️