Með ykkar fulltyngi höldum við ótrauð áfram og ryðjum brautina fyrir betri lífsgæðum. Takk fyrir veittan stuðning á árum áður, nú og til framtíðar. Kosningunni lýkur senn, kl. 12:00 verður skellt í lás að þessu sinni. :)
https://t.co/VF4ppuhJGG #kosningar
Kjarabaráttan snýst um betri lífsgæði í dag og til framtíðar. Samtakamáttur heildarinnar er lykinn að árangri. Heiðarleiki, réttsýni, jafnræði og mannúð koma okkur langt. Stöndum saman og breytum lífi okkar til batnaðar.
#ragnarþóringólfsson#vrstéttarfélag#samstaða
KYNSLÓÐ MEÐ KYNSLÓÐ
VR hefur tekið leiðandi hlutverk í því að standa vörð um hagsmuni eldri félagsmanna, ásamt því að ryðja brautina áfram fyrir unga fólkið sem er að feta sín fyrstu spor á vinnumarkaði. Í VR standa kynslóðirnar saman um samstillta og öfluga verkalýðshreyfingu.
Ég vil af öllu hjarta þakka þann stuðning sem þið hafið lýst yfir við framboð mitt til að gegna áfram formennsku fyrir ykkur í VR. Það er ómetanlegt. Harpa Sævarsdóttir skrifaði í stuðningsyfirlýsingu sem mig langar að biðja ykkur að lesa og deila. https://t.co/FPYRt5mkjV
“Hvernig ætlar formaður VR að leysa ágreining innan Starfsgreinasambandsins? Hvernig ætlar formaður VR að fá Villa og Sollu til að tala saman og sættast? Hvernig ætlar formaður VR að leysa ósættið innan Iðnfélaganna?" Nokkrar hugleiðingar um stöðuna.
https://t.co/EWThVB1UU9
Þeir sem eiga lífeyrissjóðina eiga að stjórna þeim. Ég vil atvinnurekendur burt úr stjórnum lífeyrissjóðanna. Hvað vilt þú? Skoðaðu mínar áherslur hér:
https://t.co/UvikgVAZz9
#lífeyrissjóðir#kosningar
Hvaða framtíð erum við að afhenda? Erum við föst í eigin nafla? Atvinnuöryggi, mannsæmandi laun, jafnrétti og manngildi eru meðal þess sem gjarna má skila til næstu kynslóðar. Munið að kjósa. #ragnarþóringólfsson
..ég væri verulega hugsi yfir minni framgöngu og störfum fyrir mitt félagsfólk ef Morgunblaðið tæki upp á því að ausa yfir mig hrósi, eða fúkyrðum yfir mótframbjóðanda minn....😀
**Í baráttunni fyrir réttlátara lífi er aldrei pása**
Mótframboð til formanns VR er af hinu góða. Styrkur felst í því að skerpa á áherslum og baráttumálum og fá gott tækifæri til að minna á hvaða baráttumál stjórn og formaður eru að vinna að í hversdagnum.
https://t.co/0HZPu9t3qJ
***Þú skalt ekki stela, ljúka og allskonar...En það viðgengst af því við gerum ekki nóg!***
Spilling er ekki bara að stela, svíkja og pretta, eða hygla og moka undir aðra sem verða þér hliðhollir seinna. Spilling er líka að hafa vitneskju um það og gera ekkert í málunum.
Nóg að gera í dag. kl 16:00 tökum við Elva Hrönn gott samtal um félagana sem okkur þykir svo vænt um og þær áherslur sem við leggjum í framboð okkar til formanns VR. @RUVohf - RÁS 2 | Síðdegisútvarpið
#kjarasamningar#vrstéttarfélag
Funheitar umræður í Pallborðinu á @visir_is kl. 14:00 í dag. Hlakka til að ræða við mótframbjóðanda minn í formannskjöri VR sem hefst á morgun 8. mars.
Hvað ætlar þú að gera í kvöld? Frambjóðendur til formanns og stjórnar VR kjörtímabilið 2023 – 2025 kynna sig og áherslur sínar á félagsfundi VR sem verður haldinn á Grand hótel Reykjavík, 7. mars 2023 kl. 19:30.
https://t.co/UEufEm1eu2
***NÝTTU KOSNINGARÉTTINN***
Allsherjaratkvæðagreiðsla félagsfólks í VR vegna kjörs formanns og stjórnar VR kjörtímabilið 2023-2025 hefst kl. 9:00, 8. mars 2023 og lýkur kl.12:00 á hádegi 15. mars 2023. Atkvæðagreiðslan er rafræn. #vrstettarfelag#kosningar
“Sjálfstæðir verkalýðsleiðtogar með sannfæringu sem ekkert fær haggað, eru erfiðir fyrir pólitík og atvinnurekendur en góðir fyrir launafólk.”
Segir Ásthildur Lóa Þórsdóttir í aðsendri grein á @visir_is - https://t.co/wbFctlbAVj