Mér hefur lengi þótt framsetning EconomyApp á rekstrarreikningi fyrirtækja mjög áhugaverð. Var því að prófa að setja svipaða framsetningu upp fyrir rekstur Félagsbústaða, einstaklega áhugaverður rekstur núna eins og síðustu ár.
Það hefur eitthvað verið rætt um hlutdeildarlánin og þá hvort þau séu að valda því að vísitala íbúðaverðs sé að hækka meira en hún ætti að vera að gera. Tók saman smá greiningu til að reyna að svara þeirri spurningu, sem er hægt að lesa hér:
https://t.co/4FZsh0l8N2
@bggjonsson Það mætti vera örlítið augljósara aðgengi að þessum gögnum, en ég tók eftir því að í gegnum vefþjónustuna á https://t.co/ZK2X7FSflh, þar er hægt að sækja nokkuð góð gögn :) Sendi þér pm með aðeins meiri upplýsingum um það.
Tók saman hvernig skjálftavirknin hefur þróast í kringum Grindavík í þessum mánuði, út frá þeim gögnum sem eru aðgengileg á netinu. Myndbandið spilast hægar þegar margir skjálftar mælast, svakalegt hvernig skjálftarnir ferðast í gegnum Grindavík í gær og í fyrradag.
@konradgudjons Finnst þér þá ólíklegt að 2% hækkun á díselolíu skili sér út í verðlagið á öðrum stöðum, t.d. í gegnum flutningskostnað á vörum? Og hversu langt væri hægt að ganga með svona hækkanir/lækkanir áður en þær hefðu áhirf á aðra liði vísitölunnar?
Fjármálaráðuneytið komið með lausnina á verðbólgunni: https://t.co/V8CoMOJ2hy .
Lækka eitt, hækka annað en útaf samsetningu verðbólgunnar, þá hefur þetta "engin" áhrif á verðbólguna.
En afhverju að hætta þarna?
Ef við hækkum gjöld á dísel um 200kr, og niðurgreiðum bensín niður í 0kr, þá verður skattheimtan sú sama með svipað gáfulegum útreikning. En á móti þá náum við verðbólgunni niður um rúm 1.9 prósentustig, getur ekki klikkað.
@984535b1334546d Jú, svona líta þau út í dag. Það eru bara ekki eins háar upphæðir að detta af föstum vöxtum þar næstu tvö árin, og vextirnir eru mun nær því sem er í boði í dag.
Á næstu 12 mánuðum detta um 180ma af óverðtryggðum lánum af föstum vöxtum sem eru að meðaltali 4.47%. Næstu 12 mánuðir eftir það verða það 340ma. Tók saman hvernig þróunin hefur verið síðustu tvö og hálft ár út frá gögnum Seðlabankans📽️
@ArmannValdimar Það er lang líklegast, og sést nú þegar á gögnunum um ný verðtryggð útlán bankana, og koma væntanlega bara til með að aukast á næstu mánuðum. Þetta með fyrirtækjalánin er áhugavert, hef að mestu horft bara á einstaklingslán í þessu öllu saman, þyrfti að skoða fyrirtæki líka.
@Juliusthor@konradgudjons Þarft alls ekki að vera svartsýnn til að taka þessa ákvörðun. Stýrivextir þyrftu að lækka um þessa sömu prósentu til að koma út á núlli, ef þú trúir því að það gerist ekki á næstu 10-12 mánuðum, þá nærðu að spara þér fyrir hugsanlegu uppgreiðslugjaldi ef betri kjör bjóðast seinna
@siggaandersen Af þessum 11 löndum er Ísland allavega enn sem komið er eina landið þar sem Forsætisráðherra hefur ekki tjáð sig á samfélagsmiðlum (X eða facebook)