Ég minni unnendur einkabílsins á unaðsemdir Skeifunnar. Hvers vegna að rífast við hæggenga hipstera á Laugavegi þegar þú getur blússað milli rúmgóðra bílastæða, matast gegnum lúgu og fyllt skottið af hverskyns góssi án þess svo mikið sem að drepa á bílnum?
Munum kæru vinir: Sá sem teflir fram átökum eða vali milli tveggja hópa sem virðast ólíkir sem lausninni - öryrkjum gegn hælisleitendum, öreigum gegn auðvaldi eða Íslendingum gegn útlendingum - er komin/n í pópúlistabuxurnar sínar og þið skulið setja fyrirvara við það sem sagt er