Gjörðu svo vel ástin mín, hér er tískustelpa handa þér. Þetta er sko stílisti með hund sem elskar að fara í Kringluna og versla og tekur hundinn alltaf með sér. 🤣
@_elinasbjarnar Ekkert af þessu meikar sens. Ekkert. Fæðingarorlofssjóður og Vinnumálastofnun.. mig langar mest að sækja um vinnu á báðum stöðunum til að geta mætt í vinnupartýið og verið með ræðu um hvað þetta eru taktlausar stofnanir.
meðvirk sprittnotkun: þegar maður er bókstaflega nýbúinnn að þvo/spritta á sér hendurnar en gengur framhjá sprittbrúsa og fær sér bara svo fólkið sem sér til verði ekki stressað/haldi ekki að maður sé siðblindur
Velti því stundum fyrir mér hvort bílaeigendurnir sem leggja alltaf á þessari gangbraut yrðu reiðir ef ég myndi keyra með barnavagninn í hliðina á þeim.
Amma klippti sig sjálf og mamma er brjáluð yfir því, sagði að hún væri eins og trúður. Ég reyndi að vera dipló og sagði að trúðar klipptu sig örugglega ekki sjálfir. Jú, þessi, hvæsti mamma.
@bennigretars Ég var skíthrædd við að keyra yfir brýr. Klemmdi saman rasskinnarnar, spennti alla vöðva og hélt í handfangið fyrir ofan bílhurðina því þá fannst mér ég verða léttari og því minni líkur á að brúin myndi hrynja.
Hæ!
Ég er að skrifa B.A ritgerð í tónsmíðum frá LHÍ sem fjallar um íslenska tónlistarútgáfu og áskoranir á breyttum tímum. Ég væri ótrúlega þakklát ef þið gætuð gefið ykkur 2 mínútur í að svara þessum 9 spurningum ❤️
Þetta er nafnlaus könnun💛
Takk🥰
https://t.co/FwshXhmqKL
-ná í fjölnota poka
-labba í bónus
-setja vörur í keyptan plastpoka
-labba út með vörur í plastpoka, tóman fjölnotapoka á öxlinni og láta líta út fyrir fólkið í röðinni að ég hafi í alvöru ætlað að gera þetta svona. 🙈
Takk ég, takk.
Hvernig var með píuna sem ætlaði að flytja af landi brott ef Hatari myndi vinna?
Ég vil ítarlega umfjöllun í öllum helstu fjölmiðlum um þetta mál. Eina.
#12stig