@siljabjorkk Greeenja það stundum eftir erfiðan dag að geta ekki bara komið heim í friði, lagst í sófann minn í friði og fengið mér snakk í kvöldmatinn og verið bara ein með sjálfri mér og sjónvarpinu. Fjölskyldulífið samt líka alveg fínt sko
@AudurKolbra Var svo hugsað til ykkar þegar ég var að hlusta á Ævar á grænni grein á storytell með Kára fyrir svefninn! Um 3 ára gamlan strák sem býr í Frakklandi og fer þar í leikskóla :)
Ég skil ekki allar þessar skvísur þarna úti hvernig þær hafa efni á þessum lífstíl? Eru þær með sér samning í lit og klipp, brúnir, augnhárlengingar og af snyrtivörum?
Neyðist ég til að vera mygluð flíspeysumamma þangað til ég verð rík???
Eldaði hið fræga tiktok pasta í gær, eyddi meiri tíma í að þrífa það upp af gólfinu eftir strákana heldur en að elda það.
Hlakka til fá boð í mat hjá þeim eftir nokkur ár, taka fullan matardisk, skófla honum á gólfið og heimta að fá brauð að borða.
@AudurKolbra Þorði einmitt ekki að opna þennan póst var bara gmg en ef það kemur þarna eitthvað sem barnið mitt gerir ekki og ég fer að efast um að það elski mig ?!?!? Fékk nett panic
Það skemmtilegasta við að Kári sé á Afhverju tímabilinu er að hann er farinn að spurja alltaf akkuRut???
Allavegana krúttlegt og skemmtilegt þangað til hann hættir að kalla mig mamma og fer að notast bara við Rut
Eitt ár síðan ég gifti mig, finnst bara að ég verði að líka hreint út núna eftir ár í þögninni og segja ykkur að við eyddum brúðkaups nóttinni í sitthvoru rúminu.
Óvænt brúðkaup með tvö lítil börn heima hjá ma&pa var eitthvað sem ég hugsaði ekki í gegn...
Spurði Baldur hvað hann vildi fá á vikumatseðilinn, bjúgur og steiktan fisk?!?
Vildi að ég hefði vitað það fyrir ári að ég væri að fara giftast pabba mínum...
Ókei hjálp með allar þessar stafsetningarvillur... ég var augljóslega enn í geðshræringu þegar þetta var skrifað, enda hélt ég að ég myndi þurfa lifa á kattarmat þangað til við myndum fá næst gesti 🤒
Til allra sem eru að setja upp hurðar þá mæli ég með að muna kaupa hurðarhúna!
Kári lokaði og þar með læsti alla fjölskylduna inn í þvottahúsi símauls og allslaus! Vil bara þakka fyrir að hafa ekki gert heimaæfingar og grennst því ég skreið úr um gluggann og bjargaði öllum
Er bara búin að vera heima að hugsa um börnin, þrífa, elda og prjona síðan á síðustu öld ca. Ég þrái og þarfnast þess að hitta vinkonur mínar, vera létt tipsy og tala alltof hátt og alltof mikið 😭😭
Nú hef ég ekki drukkið áfengi í nokkra mánuði og er ekki að tengja við þetta MÉR HEFUR ALDREI LIÐIÐ BETUR sem svo margir tala um?
Finn bara engan mun á mér tbh 🤷🏼♀️
Fyrsta Vikan eftir flutninga: Baldur fær sér kettling og flýr í 5 daga vinnuferð á meðan ég er heima með köttinn, eitt veikt barn og annað sem hatar góðan nætursvefn 🥵
Móðir heilsast vel m.v. aðstæður