Annað kvöld, sem svo illa vill til að er líka flugeldahátíð er spáð 0-2 m/s á höfuðborgarsvæðinu. Og stöðugu lofti sem þýðir engin lóðrétt blöndun.
Flugeldamengun hleðst upp og loftgæði minnka hratt. #skjótumrótum
Háskóli Íslands skal gjöra svo vel að útskýra af hverju ég sé að mæta ólétt í staðpróf í miðjum faraldri í áföngum sem eru 130 og 180 manns í. Þessi lokapróf eru ekki samkeppnispróf og ekkert þýðingarmeiri en lokapróf í t.d. viðskiptafræði. @Haskoli_Islands
Lögreglumaður sem er til í að a) bera tákn á einkennisbúningi sínum sem hún veit ekki hvað þýða og b) verja það eftir að hún kemst að því að þetta séu haturstákn með því þau séu "flott" og starfið sé erfitt, finnst mér þurfa á mikilli endurmenntun og fræðslu að halda.
Áður en ég logga mig út:
Kynjakvóti snýst ekki um að velja þann sem er minna hæfur til að gegna stöðunni bara því viðkomandi er kona til að jafna hlutfallið, heldur snýst það um að velja jöfn hlutföll af kvk/kk þegar aðilar eru JAFN HÆFIR.
Takk í dag
Til allra sem líður illa: leitið ykkur aðstoðar💕
Áttræð kona á hjúkr.heimili sagði mér frá stanslausum kvíða&vanlíðan sem hún hefur fundið f alla ævi auk margra tilrauna til sjálfsvígs.
Hún óskaði þess að hafa fengið aðstoð sem ung stúlka.
Með réttri hjálp er hægt að líða betur!