Gleðilega Hinsegin daga! Við missum því miður af göngunni í þetta sinn en sendum verðmætu hinsegin vinum okkar og vandamönnum og ykkur öllum hinum styrk og ást 🌈👑💪🏻
Ég var að eyða Karellen-appinu úr símanum því ég á ekki lengur neitt leikskólabarn. Síðast þegar ég átti ekki leikskólabarn var árið 2012. Vatnaskil 😐🥳😭
Ég hef alls ekkert á móti þessu notalega vinningslagi, ég hefði bara elskað að hafa @RVKDTR í sviðsljósinu fram á vor. Því fyrirmyndir skipta máli og ég sé bara stelpukraftinn sem ólgar inni í dóttur minni þegar hún hlustar á lagið 💪🏻
Þegar dóttla bað um tvo hnúta í hárið til að vera eins og ein dóttirin gerði ég bara ráð fyrir að við værum ennþá að tala um ættmenni Madrigal-fjölskyldunnar, en hún var auðvitað að meina nýju idolin: Reykjavíkurdætur. Nánar tiltekið @thuridurblaer 🤩
Þegar dóttla bað um tvo hnúta í hárið til að vera eins og ein dóttirin gerði ég bara ráð fyrir að við værum ennþá að tala um ættmenni Madrigal-fjölskyldunnar, en hún var auðvitað að meina nýju idolin: Reykjavíkurdætur. Nánar tiltekið @thuridurblaer 🤩
@elinbjon Gerðist blessunarlega ekki, en þegar það er ljóst að verið er að biðja kennara að mæta og opna skólana í ófærð væri gott að fá líka upplýsingar um færð fyrir gangandi.
Allar tilkynningar virðast varða það hvort sé öruggt fyrir bílaumferð, en ég sé hvergi neitt um hvort sé orðið öruggt að ganga til vinnu með tilliti til t.d eldinga. Fæ ég eldingu í hausinn ef ég labba af stað?
Ef þið eruð að reyna að einfalda lífið en gengur illa að finna hvort kassinn af gömlum hleðslusnúrum eða bangsahrúga barnanna kveiki með ykkur gleði er ég hér með skothelda lausn: Fáið ykkur hvolp! Hann maríkondóar líf ykkar á mettíma og án allrar meðvirkni. 10/10