Hann ber ábyrgð ef vel gengur (að hans mati) en hún þegar illa gengur. Allt eftir bókinni. Auðvitað tekur hún skellinn. Hann er alltaf flottur. Áfram strákar.
@irisbjarnadotti@AlbinaIcelander Orléans er mjög skemmtilegt, eitt af þeim spilum sem mér finnst spilast vel þó það séu bara tvö að spila. Svo tek ég undir Azul meðmæli og Wingspan, en þau eru samt mun skemmtilegri þegar spilarar eru 3 eða fleiri.
@ElvaAgusts Minn þriggja ára tók þrjá í röð á rétt rúmum mánuði, með 1 dag í pásu á milli veikindanna🙃 Fóru loks í þriðja skiptið, líklegast vegna þess að þá fékk hann annað sýklalyf.
@arnorsteinn Gætir prufað lífrænar varnir, þráðormar éta egg svarðmýsins. Ávaxtaflugurnar ættirðu svo að losna við á einhverjum dögum/viku(m) með því að geyma ávexti inní ísskáp og fara með ruslið út oftar ef þú ert mikið að henda lífrænu efni.
Sorrí með facebook-legan póst, en fallegasta fararskjóta sem ég hef átt var rænt 😭 ég hef bara átt þessa elsku í 2 mánuði. Læst með góðum lás við staur á Bjarnarstíg, stolið milli 10 og 1 í gærkvöldi. Miðbæjartwitter, sáuð þið nokkuð grunsamlegt gerpi á fallegu hjóli?
@skolledla Keypti Scarpa Terra Gore-Tex í vetur (í Fjallakofanum) og finnst þeir æði. Notaði þá strax daglega og fékk aldrei hælsæri eða illt í fæturna eftir þá.
Fæ líka alltaf svo góða þjónustu í Fjallakofanum og mæli mikið með að kíkja til þeirra 🌱
@klararakel1 Heima, í Reykjavík, er þetta eitthvað um 3000kr á mánuði. En í bústað útá landi (kalt svæði) er þetta um 12000kr, þessa köldustu mánuði. En þá erum við ekki einu sinni að nota húsið, bara halda því í einhverjum 11°. Í sumar var það ódýrara þrátt fyrir notkun.
@klararakel1 Hef því miður ekki hugmynd hvað þú getur gert núna, en í mínum bústað er rafmagnslínameðfram kaldavatnslögninni svo hún frjósi ekki. Kannski gætiru reddað einhverju þannig í vor? Kannski er þetta ekki legit tækni haha, afi minn gerði þetta fyrir einhverjum árum