Nei, ég segi nú bara svona: "For context, the population of the Buenos Aires province, Argentina's capital, is 45 times bigger than that of Iceland's entire population." @cnnsport#ISLARG#ISL
Kæri Bjarni, værir þú til í að hætta að tala í karlkyni þegar þú talar bæði um konur og karla ("þeir í Viðreisn" / "þeir í meirihlutanum í Reykjavík"). Bestu kveðjur, persónufornafnalöggan #þauenekkiþeir#kosningar
Ég hef alltaf óttast svona kökur með prentuðum myndum á. Líka í barnaafmælum. Hver skar hausinn af Eyþóri og borðaði hann? Hver át hárið? #kosningar#kosningar18
Alls staðar skal karlkynið vera hlutlausa kynið, meira að segja í rannsókn um áfallasögu KVENNA! Og svona í ljósi þess að þetta er kvennarannsókn hefði ég nú bara splæst í kvenkyn ... #neiþaðhefðiveriðalltofmikiðflipp https://t.co/MSC1e4xBtV
Mómentið þegar þú finnur símann þinn loksins - liggjandi ofan á rúminu en undir lakinu sem þú varst að setja hreint á rúmið. Ó, strappaðir líka óvart duddu undir lakið ... Ó og HEILAN BANGSA! 😂 #ekkertermérómögulegt#teamADHD
Loksins unnum við sem aldrei uppfærum forritin okkar fullnaðarsigur. ÉG ER MEÐ GAMLA SNAPCHAT-IÐ, BEIBÍ BEIBÍ. Hefði líka ekki farið að hugsa um að uppfæra fyrr en um mitt ár 2019 eða svo. #þausíðustuverðafyrst
Sokkaskrímslið sem býr í þvottavélinni og étur sokka á illan tvíburabróður: 👽☠️ Duddudrjólann 👽☠️. Hann nærist á duddum og sálarangist foreldra. SEX SNUÐ Í UMFERÐ OG EKKERT FINNST #annarsbarahress
Þriggja ára barnið sem elskar meira en allt að fara í heimsóknir kom hlaupandi inn í stofu í gær: "MAMMA, ÉG VIL FARA Á NÆSTA BÆ!" #alltilagisonursaell