Dreymdi að pabbi væri illur guð sem hefði sett svefnbölfun á mig svo ég var alltaf þreyttur. Mér tókst að safna liði til að berjast við hann. Í hér pabba var kengúra og ég las fyrir hana spádóm úr spádómsköku sem gerði hana hrædda því ég var galdramaður skv henni.
Dreymdi að ég fékk mér brauðsneið með tómatsósu, steiktum lauk og stórum fjólubláum kveikjara sem þakti brauðið. Seinna fékk ég mér fimm kveikjara ofaná brauð því þessir stóru voru búnir
Dreymdi líka um daginn að bróðir minn hefðu verið drepinn í skýrnarveislu Jóns Franklíns. Ég fór niður í afgreiðslu á hótelinu sem ég var í og lagði bölvanir á starfsfólkið. Breytti einhverjum í býflugumýs öðrum í broddgaltarsporðdreka og ein gat ekki fari úr nærfötunum
Dreymdi að við Jessica værum fiskar. Við vorum í bæ sem allur á floti og vorum að brjótast inni hús sem var bannað að fara inní. Þegar við komum inn vildi Jess fara að elda en það var erfitt að nota ungana. Svo komu menn og ætluðu að eyðileggja húsið og þá syntum við út
Dreymdi að @gautisfk hefði unnið keppni hér á Seyðisfirði og mátti ákveða verðlaunin sjálfur. Hann vildi láta breyta sér í tré svo hann gæti fylgst með Seyðisfirði í gegnum aldirnar sem þögull áhorfandi. Ég reyndi að fá hann ofaná þessu en fæturnir voru orðnir að rótum nú þegar.
Dreymdi að ég væri sjóræningi að kljást við górillu drauga. Górillurnar vildu ná messaguttanum því mamman hafði misst barnið sitt í lifanda lífi. Ég sigraði þær með speglum og kertaljós því þær þoldu ekki ljós.
Dreymdi að við Jess værum að stela töfrasjónvörpum þegar hún þurfti skyndilega að fæða barn. Hún endaði á að fæða Iguana eðli úti á götu og okkur þótti það ósköp eðlilegt
Dreymdi að Doddi (kennari í 3.ja bekk) væri djöfullinn sjálfur og ég væri í læri hjá honum að skrifa ritgerðir en ég mátti ekki segja nemendum hans sannleikann. Þeir lásu svo óvart ritgerð eftir mig sem sagði að Doddi væri djöfullinn þannig að ég sýndi þeim hann bara.
Dreymdi að ég var að horfa á tímon og pumba og svo í lok myndarinnar kom auglýsing um nýja Lion King sem hét Lion King: misdion Moscow. Múfasa var fúll útí Simba fyrir að fara til Moskvu en hann varð að gera það en för óvart til Chernobyl.
Dreymdi um daginn að ég hefði fundið uppá hugtakinu "veisla" í 8.unda bekk. Svo fór ég að athuga þetta betur þá hafði ég skrifað veilsa sem öllum þótti glatað og ég var ekki kúl lengur
Dreymdi að ég væri kvenmaður í sambandi við kínverja. Hann þurfti svo að fara í herinn og kom aftur eftir mörg ár og var orðinn gamall og risastór. Hann hafði aðallega verið að berja á Tævönum í hermennsku sinni.
Dreymdi að ég hefði verið í Lommanum og að Hulk hefði sofnað í garðstól fyrir neðan Stakkahlíð. Mömmu fannst svo mikill lubbi á honum að hún ákvað að klippa hann. Pabbi varð eitthvað foj því hún var að nota rakvélina sem hann ætlaði að nota til að raka á sér magann
Dreymdi að pabbi væri reiður útí þig því ég hafði breyst í stóra pöddu. Hann vildi ekki að neinn sæi mig og ef ég vildi verða maður aftur yrði ég að gjöra svo vel að redda öllu sjálfur. Ég tók einhverjar slöngur og barka í áhaldahúsið þar sem pabbi beið mín.
💥 We're making the ultimate documentary about one of the largest #WW2 battles the Allies fought on German soil.
THIS IS RHINELAND 45
JOIN US! 👉 https://t.co/Q3DNrF1MRa
https://t.co/JY0eh4KDhl
Dreymdi að ég væri einhverskonar loftskeitamaður í stríði við Þjóðverja. Ég var sá eini sem talaði þýsku á kvöldvaktinni og var alltaf að senda sprengjuflugvélunum öfug skilaboð við það sem þeir fengju. Svo fengu þeir nóg og sendu mig og annan gæja 47 ár í framtíðina
Dreymdi að ég væri önd í dýrauppreisninni miklu gegn mönnunum. Ég var hluti af andarherdeildinni og barðist með hníf í goggnum. Eftir uppreisnina varð önnur dýrauppreisn gegn sigurvegurunum og ég varð sérstök sendiönd fyrir hönd(væng) sigurvegarana