Er með 10% vexti á húsnæðisláninu en kaus samt Sjálfstæðisflokkinn því hann þarf sterkara umboð 💪 og strikaði auðvitað yfir Dag Borgarlínuson, áfram Sundabrautin!
@gudmegill já úff ekki viss um að fólk sem vill góðar skilvirkar almennings samgöngur út á flugvöll sofi yfir þessum gögnum, alveg 3100 manns sem kjósa bíl út á völl 😤😤😤
Ég held að sá stjórnmálaflokkur sem stingur upp á því að brjóta nýtt land OG þétta byggð muni slá í gegn.
Íslenski vandinn - öfgarnar. Við byggðum dreift forever, hættum svo nánast að byggja til að laga það.
Og nú sýnist mér þeir vera lofa því að hætta að þétta, til að laga hitt - bara svo einhver geti komið eftir nokkur ár og lofað að laga það.
Borgir þurfa að stækka.
Byggðin þarf að vera vönduð og þétt - ekki annað hvort. Sá sem segir þér annað, hann er ekki lausnin - hann er vandinn.
Það má segja milljón hluti um og gegn og með Borgarlínu en kæru lesendur mínir, hvort sem þið eruð nýju hægri sinnuðu survival of the fittest vinir mínir eða gömlu vinstri sinnuðu dýrin í hálsaskógi félagar mínir...
Ekki hlusta á einhvern tala um Borgarlínu, sem talar bara um samgönguhlutann. Sá aðili er annað hvort of vitlaus til að skilja verkefnið, eða það er af annarlegum hvötum sem hann hundsar hvað verkefnið er - það er skipulagsverkefni.
Hérna er útskýringin í sinni einföldustu mynd.
Það á að strengja línu yfir Reykjavík og þróa byggðina eftir þeirri línu - svo borgin fúnkeri. Nágrannasveitarfélög munu svo strengja línu, á þá línu - og þróa byggðina eftir henni.
Þetta er svo fkn beisikk. Að maður þarf bara að hafa séð framan á Sim City hulstrið til að vita að þetta er það eina sem virkar; þjónustan verður að vera nálægt íbúunum og það þarf að vera auðvelt að komast á milli.
Vegakerfi í borgum eru hæg og óáreiðanleg, engri borg í heiminum hefur tekist að laga slæma umferð.
Þess vegna þarf þessi lína að standa utan umferðarinnar - eins og í öðrum borgum í heiminum.
Það má svo hafa milljón skoðanir um hvar á að strengja þessa línu, hvað hún má að kosta og hverskonar tæki við ætlum að leiða í gegnum hana og hvort tölvur muni stýra þessum tækjum eða fólk, hvort við ætlum að grafa hana eða byggja hana upp á pöllum eða hvað.
En þessi lína er nauðsynleg. Hún er það í stækkandi borg.
En ef þú ferð að spyrða þessu saman við mislæg gatnamót eða fjárfestingu í gatnakerfinu eða einmitt niðurlægja sjálfan þig með því að láta eins og það sé einmitt annað hvort eða...Að við þurfum annað hvort að þróa borgina eða laga umferðina á Miklubrautinni.
Þá held ég að þér myndi líða betur í dreifðari byggð og minni bæ og ættir kannski ekki að taka mikinn þátt í nákvæmlega þessari umræðu.
ég veit ekki afhverju ég skrifaði þetta. ég settist bara niður til að leita að símanúmeri.
Pistill um það af hverju góðar almenningssamgöngur eru frelsismál. Eftir áratugalanga valdatíð íslenskra „frelsisunnenda“ líkist landið að mörgu leyti frekar þriðja flokks Sovétríki en frelsisparadís. Við erum kyrrstöðusamfélag þar sem ríkisvaldinu er beitt í þágu hinna fáu.
Mikið af þvælu komið fram í kjölfar samgöngusáttmálans en líklega toppaði @RagnhildurAldaV það með því að segja í Kastljósinu að “framkvæmd á neðanjarðarlesta kerfi undir Reykjavík myndi ekki hafa nein áhrif ofanjarðar á framkvæmdartíma” 😂😂😂
@jokull @DagurBollason Ætti það að koma niður á barnafjölskyldu að annað foreldrið þéni meira? Sé ekki hvernig það hjálpar barninu eða heimilisbókhaldinu. Hvað ef annað foreldrið er í námi? Á þá að taka meira af þeirri fjölskyldu þegar það er bara einn aðili með tekjur?
U nei þetta er ekki til í Danmörku enda fáránlega hættulegt fyrir gangandi vegfarendur. Sorrí en íslenskum bílstjórum er ekki treystandi til að fara yfir á rauðu stundum https://t.co/J9dJjxnA1I
@helgibjorgvins@gullisgislason@kjartanmagg Kjartan er upptekinn á ChatGPT að finna lausn á umferðarstýringu eða kafa og kanna möguleika á göngum frá Vesturbæ til Hafnarfjarðar, allt gert til að koma með ömurlegar órökstuddar hugmyndir í stað Borgarlínu.