Ræddum við @kjartansson4 um toppliðin í Serie A. Þrír unnendur ítalska boltans, Inter maður, Roma maður og Juve maður að spjalla um þessa fallegustu deild Evrópu 🇮🇹 vonandi hafið þið gaman að.
Zaccagni er búinn að vera einn skemmtilegasti leikmaður Serie A á þessu tímabili 🤩
Geggjaður spilari.
Væri mest til í að sjá hann taka #10 hjá Atalanta
Maður er ennþá í molum eftir þessar fréttir af Papu og riflildi hans við Gasperini. Einn besti eiginleiki Atalanta liðsins er sá að það getur alltaf einhver fyllt í skarðið, og gert það vel.Ófá dæmi hafa sýnt það. En Papu er eiginlega eini leikmaður Atalanta sem er ómissandi
Schalke að sjálfsögðu að tapa.
Liðið hefur verið í algjörri sjálfseyðingu núna í nokkur ár. Þeir hafa gert það að gamni sínu að vera verst rekni klúbbur Bundesligunnar síðustu 3-4 árin.Ef þeir ná 25 leikjum í röð án sigurs er nýjum botni náð fyrir einn stærsta klúbb Þýskalands.
Það sem myndi kóróna allt væri það að Breel Embolo sem þeir keyptu til sín á 22 milljónir evra og átti að vera þeirra næsta stjarna myndi skora gegn þeim eftir að hafa verið seldur á 11 milljónir nokkrum árum síðar og blómstrað.
Þau “gæði” eru nú að koma í ljós í bland við uppþornað unglingastarf og niðurstaðan er botnsætið. Þrátt fyrir að hafa rekið valdamikla menn innan klúbbsins virðast slæmar ákvarðanir áfram viðlogandi liðið. Það er allt í messi hjá Schalke og verður það áfram