Opinber umræða? Hallærisleg. Að hafa skoðun á því sem aðrir gera? Sýnir aðallega hvaða fólki líður sjálfu illa. Tweet mitt? Nikótínpúði upp í nös á ketti. Ég las aftan á nýrri bók að ein af þremur merkingum íslenska orðsins innsæi væri “the ocean within” er það einu sinni rétt?
Ég er hættur að drekka írskt kranavatn eftir að mamma og pabbi komu í heimsókn í síðustu viku og sögðu að það væri ógeðslegt klórbragð af því. Ég var búinn að drekka það daglega og oft mikið af því í 3 mánuði – en þau höfðu rétt fyrir sér.
Þegar ég er búinn að skrifa ritgerðina mína ætla ég að skrifa aðra ritgerð um fólk sem notar yfirstrikunarpenna í bókasafnsbækur. Síðan ætla ég að skrifa aðra um áhrif þess á lestrarupplifun lánþegana sem á eftir koma. Svo ætla ég að skrifa ljóð um bókasafnsplast.