Er ekki hluti af hlutverki utanríkisráðherra að standa vörð um gildi þjóðarinnar á alþjóðavettvangi? Stríðsglæpir fara alveg þvert á gildi okkar Íslendinga sem friðsæl þjóð.
Það stingur mig svo í hjartað þegar ég sé fólk sem leyfir hundunum sínum ekki að snöfla í göngutúr 🥺 Það er eins og að við fengjum aldrei að lesa fréttir eða skoða samfélagsmiðla o.s.frv.
Einu sinni deildi ég herbergi með konu á spítalanum sem gat ekki sofið nema með kveikt væri á öllum ljósum, kveikt á sjónvarpinu og heyrnartólin í botni. Það var martröð.
Af hverju eru módel fyrir konuföt alltaf 175+ þegar meðalhæð kvenna í Evrópu er 167. 😩 Af hverju ekki að sýna fötin á nokkrum konum, allar misháar?
Kveðja, ein meðalhá og heldur klofstutt kona í buxnaleit á netinu.
@birkirh Ég skil ekki tilganginn. Er þetta einhver ömurleg tilraun til þess að fá fólk til þess að mæta veikt vegna þess að það nennti ekki að standa í því að útvega vottorð?
Þegar ég var yngri kallaði ég mömmu stundum múttu. Litlu systur mínar hermdu en misskildu það eitthvað aðeins og kölluðu hana „mottamamma“. Mér finnst það svo krúttlegt. Ég kalla hana stundum mottamamma ennþá í dag.
Af hverju eru ekki settir einhverjir standardar á fólk sem getur boðið sig fram til Alþingis? Við setjum miklar kröfur á fólk þegar við ráðum það í vinnu, en hvaða jólasveinn sem er getur farið í það að stjórna landinu okkar? Make it make sense. 1/2
Lyfjameðferðinni var svo breytt í aðgerð og ég fór seinna í lyfjameðferð. Systir mín komst aldrei til Kaupmannahafnar vegna covid. Þetta var samt svo ömurlegt af yfirmanninum hennar að sýna veikindum systur hennar (erum mjög nánar) engan skilning.
Þegar ég byrjaði í lyfjameðferð bað ég systur mína um að koma til cph og vera hjá mér. Hún bað um frí frá vinnunni sem leikskólakennari. Yfirmaðurinn hennar reyndi að sannfæra hana um að hún þyrfti þess ekki vegna þess að ég yrði svo þreytt og gæti ekki eytt tíma með henni???
@eyrun_briet Oh, hvernig er hægt að vera svona andstyggilegur? Ég þekki þig ekkert en veit að þú átt svona framkomu ekki skilið! Ég vona að þessi gaur verði illa skeindur það sem eftir er.
Apple TV+ er ekki að fá næga umfjöllun að mínu mati, það er svo mikið af góðu contenti þarna inni! Severance eru með betri þáttum sem ég hef sé, mjög vel skrifaðir og geggjaðir karakterar. 10/10 mæli með!
Í dag var mér boðinn mentor til þess að hjálpa mér með ADHD. Hefur einhver reynslu af því að það virki betur en lyf? Ég ímynda mér bara að þetta sé manneskja sem segir mér að ég þurfi bara að reyna að einbeita mér aðeins betur eða að gera skipulagsdagatöl sem ég mun ekki fylgja.