Ísland virðist ætla að endurtaka öll sömu mistök og Norðurlandaþjóðirnar hafa gert í málaflokki útlendingamála. Þessi þróun er fullkomlega fyrirsjáanleg, við henni var varað og stjórnmálamenn skelltu við skollaeyrum. Ég fullyrði að enginn málaflokkur muni hafa meira afgerandi áhrif á lífsgæði á Íslandi næstu 25-50 árin en útlendingamál ef við missum tökin. Við getum rétt af skattprósentur og skorið niður óþarfa útgjöld, en það er gríðarlega erfitt – næstum ógerningur – að byrgja brunninn í þessum málum eftir á.
Það gengur líka svona ljóóómandi vel að ná niður verðbólgunni.
… Var það ekki einmitt eitt af þremur áhersluatriðum nýrrar rikisstjórnar? 🙄 https://t.co/H1ShTiumCz
Íslenski draumurinn: verða opinber starfsmaður sem vinnur við að eyða skattpeningum auk þess að gera samborgurum sínum erfiðara fyrir með flóknari og íþyngjandi sköttum. Ferðast frítt í “vinnuferðir” um allan heim í nafni umhverfisverndar. Lágmarks vinna en above average laun.