@Breidholt Við að sjá þessa mynd átta ég mig á því að í sundlaugarferð í fyrra sem var að mestu varið í lauginni undir turninum hef ég líklega aldrei litið upp…
@naglalakk …og breyttar skilgreiningar. Þegar hugtakið var fyrst tekið upp var það til að lýsa því sem í dag myndi kallast mjög alvarleg tilvik og hefur verið útvíkkað reglulega síðan. Það er bókstaflega búið að færa markstangirnar.
@Breidholt Ég er að undirbúa stofnun framboðs fyrir næstu borgarstjórnarkosningar sem hefur það eina stefnumál að setja rafstýrða polla (sem koma upp úr götunni) á öll gangbrautarljós sem eru handvirkjuð.
@asta_fish@Angurvaki Án þess að þekkja sport-samhengið er merkingin sú sama á sænsku og íslensku. Eini munurinn trúlega sá að í framburði er 'alla' með linum ellum.
@naglalakk Ég var þarna í maí og varð mjög hissa að finna 3,5% útgáfu af Samuel Adams Boston Lager, sænski markaðurinn er greinilega stærri en maður heldur.