Íþróttafréttamaður hjá @ruvithrottir frá árinu 2009.
Sports reporter at @ruvithrottir since 2009 with an MA degree in history, specializing in sports history.
Útsendingastjórinn hjá Sýn virðist hafa orðið vel spenntur í vítaspyrnukeppninni í Liverpool-Chelsea og rekið sig í takka og farið í auglýsingar. Var þó nokkuð fljótur að klippa aftur á merkið og græja Liverpool sigur.
Nú er ég enginn Manchester United maður. En getur verið að í þetta sinn væri ráð þar á bæ að sleppa því að reka knattspyrnustjórann og skipta frekar út æðstu stjórnendum fyrirtækisins í staðinn? Nei, bara hugmynd. Ef höfðinu dansa limirnir.
Staðan er semsagt sú eftir að Sverrir Ingi meiddist að Daníel Leó Grétarsson er eini hreinræktaði miðvörðurinn í landsliðinu. Auðvitað menn sem leysa þá stöðu orðið eins og Aron, Guðlaugur Victor og Hörður Björgvin. En þessi staða stingur óneitanlega í stúf. Hver er næstur inn?
Lítur út fyrir átta íslenska keppendur á EM í frjálsíþróttum. Elísabet, Guðrún og Hilmar í sleggju, Erna í kúlu, Sindri í spjóti, Guðni í kringlu, Baldvin í 10.000 m og Hlynur í maraþoni. Hera aðeins tveimur sætum frá því að komast inn í kringlunni. EM hefst 10. ág í Birmingham.
@Stefan_Mani_@doridna@Sverrirhelga95 Jóhannes var kóngur. Aðalmaðurinn á bakvið upphaf skipulags íþróttastarfs og fyrstu ólympíuförina. En með stórt egó. Ég gerði þennan þátt í fyrra: https://t.co/su42eOF5Yv
Mér finnst ekki nógu mikið talað um Ægi Jarl Jónasson sem topp 3 bestu félagaskiptin í ár í Bestu karla. Hefur komið með svo ótrúlega mikið inn í þetta Fram lið.
Í dag eru tvö ár þar til Ólympíuleikarnir í Los Angeles verða settir. Hér er grein í tilefni dagsins, þar sem því er spáð að Ísland geti átt 22 keppendur á leikunum miðað við stöðuna í dag: https://t.co/o7eT3alfO5
„Ég var þá eiginlega orðinn það slæmur að ég rétt náði að draga mig á milli veggja til að komast á klósettið. En ef ég þurfti að fara að hitta lækni, fara í rannsóknir eða niður í mötuneytið þá var mér rúllað um hjólastól.“
https://t.co/wZWWgAExAp