Hef grun um að þessi tvö séu of vitlaus til að verða útikettir, svona í ljósi þess að þau eru bæði búin að detta ofan í morgunbaðið hennar Silju undanfarnar fimm mínútur.
@solskinssolveig Ah, úff. Kann ekki við tóninn þarna. Jarðsprengjusvæði? Hinsegin fólk á að geta gert kröfu um lágmarks rannsóknarvinnu án þess að fólk haldi að við séum með heykvíslar á lofti.
@flamptiton Það er öllum til hagsbóta að almenningssamgöngur séu góðar og vel nýttar, hvort sem fólk keyrir bíl eða ekki. Fólk sem gengur/hjólar er svo almennt heilsuhraustara. Mér finnst þetta samt fyrst og fremst snúast um það hvernig samfélag við viljum.