Fór semsagt með manninum mínum á árshátíð vinnu hans. Eurovision þema (Eurobandið að spila) og frítt áfengi frá kl. 17. Eftirfarandi eru sms frá mér til mannsins míns þetta örlagaríka kvöld. P.s. hann veit ekkert hver Selma Björns er.
@TinnAndersson https://t.co/wMSv67k1Zj
Ég keypti mér þennan um daginn og hann er AMAZING!! Léttur, þunnur, nær fyrir neðan rass og píku, hægt að snatcha í mittið og með sjúku endurskini - mega gellulegur og þægilegur! Draumur fyrir feita göngukonu 😍🔥
Er með stelpurnar á leikvelli og líka annað foreldri með krakkana sína og það er smá munur á okkur rn, myndi ég segja. Það foreldri er búið að útbúa ratleik eða eitthvað með börnunum sínum hérna, ég sit á bekk með sólgleraugu og hettu, borðandi ostaslaufu úr bónus og drekka nocco
Sorglegt og gleðilegt á sama tíma að vera orðin 37 ára og núna fyrst að koma í ljós að það er öruggt að ég er með ADHD. Svo undarlegt að það sé líklega orsökin/ástæðan að baki öllu sem hefur verið erfitt, óskiljanlegt, sárt, asnalegt. Léttir að átta sig á að maður sé ekki mistök.
Segjum sem svo að ykkur langi að kaupa ykkur 700 bls. bók til yndislesturs, hvort mynduð þið þá kaupa hana innbundna (harðspjalda) eða sem kilju (mjúka)?
Að missa frí því daginn ber upp um helgi er brot á einhverjum réttindum. Ef það er frí, þá á að vera frí. færið þessa daga á næsta mán eða fös. Bank Holiday heitir þetta í Bretlandi. Af hverju að berjast fyrir einhverju klukku bullshit þegar þetta mál ætti að ganga fyrir?
@G_ThoraBjorg Svo eru það þau okkar sem hlustuðu á allt ofanvert, bara bæði betra! Staðfest bsb plakat á einum vegg í herberginu og svo risa prodigy plakat á veggnum á móti 💜
@larrybird1312 Bara meiriháttar skellur sko!! Ég var samt eiginlega ekki viðræðuhæf, var bara svona í hálfgerðum BSB-hamingjutransi (gjörsamlega bláedrú!), greyið vinkona mín sem var með mér, ég gat bara eiginlega ekkert talað við hana hahaha.