Velti fyrir mér hvort ég þurfi að hafa áhyggjur af eða hvetja kærastann minn áfram í lestri á bók Aðalsteins Leifssonar, ríkissáttasemjara, um samningatækni. Hvaða áhrif mun þetta hafa á heimilislífið? Þarf ég á móti að kynna mér helstu atriði um verkfallsaðgerðir?
Óskast: þessi hárkolla, aðgengileg á höfuðborgarsvæðinu til láns/leigu fyrir kl 21.00 á morgun, af engu sérstöku tilefni nema vegna fan girl bíóferðar aldarinnar
Konan sem fór á hjólaskautum í vinnuna sína í Borgartúninu þennan morguninn gaf af sér svo geggjaða orku að mig langar að tappa hana á flösku og selja sem orkuskot.
Ég geng oft yfir þessa brú milli Teiga og Túna, yfir KMbraut. Handriðið ryðgað, málningin er þreytt og hún er ásett (lélegu) graffi. Það væri svo mikil prýði ef hún væri máluð fallega, td í norðurljósalitum, sem myndi mæta gangandi/keyrandi, andspænis firði og fjöllum í fjarska🗻
Mælanlegur kostnaður v. blæðinga, 🌸skatturinn, vísar til beinna útgjalda, ss dömubinda.Annar kostnaður sem kann að falla til, en gleymist við útreikning, er verkjalyf (~2000kr) + 9 hlauppokar í Krónunni (~7000 kr) v. fyrirtíðasp/hormónaójafnvægis. Veskinu blæðir líka x1 í mán 💸
POV: Möndlukakan er einn stærsti menningarlegi fjársjóður okkar Íslendinga.
Gmg, það jafnast ekkert á við slíka kökusneið í bland við einn rammbitran uppáhelltan kaffibolla.
Þetta skrifa ég, gæðandi mér á svoleiðis í morgunmat, í kyrrlátri sveit á Norðurlandi.