Í gær tók ég rafmagnslest frá KBH til 5.000 manna bæjar. Lestin fer á kortersfresti og tók 15 mín fyrir 900 isk.
Í dag tek ég dísilrútu sömu vegalengd, frá KEF til RVK þar sem 230.000 manns búa. Rútan fer á klukkutíma fresti, tekur klukkutíma og kostar 3890 isk. GERUM BETUR!
@atliy Mér finnst mikilvægt að halda -tölva inni í hverju sem endar á að sigra. Allur ruglingurinn sem hefur hlotist út af slæmum orðum eins og smáforrit má ekki endurtaka sig.
Þegar horft er yfir völlinn á nauðgandi lögmenn, dómara sem telja pleðurbuxur til marks um samþykki, og skilorðsbundna nauðgunardóma ættum við að vera ólýsanlega fokking fegin að konur vilja bara réttlæti, ekki hefnd.
Oft var þörf en nú er nauðsyn. Þingflokksformenn Pírata, Viðreisnar, Samfylkingarinnar og Flokks fólksins hafa lagt fram vantrauststillögu á Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra.
@hillldur Þetta var upprunalega til þess að bæta upp fyrir hvað pixlarnir voru stórir þá. Það er engin ástæða til þess að halda þessu til streitu með hærri upplausn á skjám í dag en að sumu leyti mætti kalla þetta áhugaverða hönnunararfleifð.
@arni_gu@bjornteits Nei, það sem er sturlað er að borgin og bæjirnir á Íslandi séu þannig hannaðir að það eru í raun engir vænlegir möguleikar aðrir en að vera á bíl. Það hefði verið hægt að gera þetta allt öðruvísi, eins og raun ber vitni meðal nágrannaríkjanna.
@kristnihald @fannarapi Það er hægt að koma í veg fyrir fugladauða með ýmsu móti eins og útfjólublárri málningu. Svo er verið að þróa spaðalausar vindmillur sem eru bara turnar sem veita vindinum inn í rör. Og það skal hafa í huga að heimiliskettir drepa svona 3.500 sinnum fleiri fugla en vindmyllur.
@helgaloa 1. Hnetusmjör (oj)
2. Avókadó (ofnæmi á tímabili, virðist hafa lagast, en núna finnst mér það bara ekkert gott)
3. Kaffi (skemmir í mér garnirnar).