Förum varlega um helgina: Vont veður og hálka. Veiran út um allt. Heilbrigðiskerfið undir miklu álagi. Gott að búið sé að aflétta en nú sem aldrei fyrr gildir persónulega ábyrgð einstaklingsins sem margir vildu að væri aðferðin sem beitt væri Nú er tækifærið að sýna ábyrgð.
Jæja næsta verkefni. https://t.co/THl2VCLq4N
Gæti orðið ansi blautt um tíma á höfuðborgarsvæðinu þannig að nú er góður tími til að finna niðurföllin og hreinsa frá þeim. Aðrir fá væntanlega meiri snjó, eins og það sé ekki komið nóg af honum víða.
Það þarf AFTUR að moka frá niðurföllum, passa að vatn komist sína leið og festa niður ruslatunnurnar. Eins þarf að fara á milli landshluta frá suðvesturhorninu í dag, frekar en á morgun ef ferðir geta ekki beðið til laugardags.
https://t.co/nAksGvifiu
Mikilvægur áfangi að þeim samfélagslegu takmörkunum sem við höfum búið við meira og minna í tvö ár sé aflétt. Hins vegar er Covid ekki búið og margir smitaðir. Förum varlega, pössum uppá hvert annað og sýnum kærleik í umræðunni.
@arnarasgeirss Nei frá miðnætti annað kvöld er ekki skylda að vera í einangrun jafnvel þó þú greinist á morgun. Samt tilmæli að einangra sig til að smita ekki aðra.
Stór áfangi í baráttuni í dag. Skref tvö af þrjú í afléttingum. Þurfum tvær vikur til viðbótar til að bylgjan nái hámarki og álagið á kerfið lagist. Það er auðvitað spurning um líf og heilsu ef ofurálag skapast á heilbriðgiskerfið með fjölda smitaðara þó miklu færri veikist illa.