Samfylkingunni finnst í lagi að ræða blaður sem er hljóðritað með leynd á öldurhúsi, mannalæti sem Ísraelskur njósnari er fenginn til að narra fram og hljóðrita á veitingahúsi, skilaboð sem fengin eru með byrlun og stuldi. En ekki samtöl um stjórn ríkisins sem birt er af viðtakanda sem var ráðherra á þeim tíma. Þar dregur Samfylkingin línuna!
@5norri Þetta er alltaf svo mikið leikrit. Ríkisstjórnin afgreiddi fjárlagafrumvarpið frá sér um tveimur mánuðum fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna, þann 1. júlí, með öllum þessum feitu skatta- og gjaldahækkunum.
🇮🇸Mæli með að horfa til enda. Á síðustu dögum hefur þetta ávarp Nóbelskáldsins til þjóðarinnar 1. des 1955 um undirstöðu auðlegðar Íslands verið fast í hausnum á mér.
Spáið í hvað þetta er sjúk þórðargleði! Af veðrinu má sjá að þetta myndband var tekið upp áður en Seðlabankinn tók ákvörðun sína. Þetta lið er búið að bíða í ofvæni eftir vaxtahækkun, sem skaðar alla, og örvast allt við að hafa orðið að ósk sinni.
Þetta er ekki fólk sem ber hagsmuni þjóðarinnar fyrir brjósti sér. Þetta er fólk sem er með agenda. Sérhagsmuni, leyfi ég mér að segja.
Munum að það er sama fólkið og ber ríka ábyrgð á vaxtahækkununum undanfarið, sem er að reyna að selja þjóðinni þessa snákaolíulausn.
Það eina sem aðildarviðræður gera er að tefja það að hægt verði að ná tökum á efnahagsmálunum hér. Við þurfum að taka til heima hjá okkur og koma á nýrri þjóðarsátt. Mikilvæg skref hafa verið stigin í hagstjórninni, með allt annarri peningastefnu. Við nutum þess á árunum fyrir Covid. Allt stefndi svo í rétta átt áður en vinstri stjórnin tók við. Næstu skref verða ekki stigin með klofna þjóð og vinstri stjórn við völd næstu árin.
Það eina sem þarf er fólk við stjórnvölinn sem hefur getu og þor til þess að takast á við verkefnið. ESB eða ekki þá er það okkar að ná þessum vöxtum niður. Aðildarferli mun aðeins tefja það.
Þessi þjóðaratkvæðagreiðsla var ekki til umræðu í kosningunum og Samfylkingin var kosin út á efnahagslega stöðugleikann. Að gera eitthvað strax. Að vera með plan. Að ætla einmitt EKKI í þessa vegferð. Eins og kom skilmerkilega fram í myndbandinu sem ég deildi með og ég á fleiri til. Viðreisn (sem fólk gleymir oft að fékk bara ~15%) forðaðist einnig að ræða ESB í kosningabaráttunni og meira að segja ÞKG hélt aftur af sér.
Meira að segja í ríkisstjórnarsáttmálanum var efnahagslegur stöðugleiki, að ná niður vöxtum og verðbólgu sett í algjöran forgrunn. Atkvæðagreiðslan var fjarri því aðalmálið þar.
Fyrir ári síðan (ágúst 2025) sagði Kristrún í viðtali við mig að hún ætlaði ekki að eyða orku í ESB á meðan efnahagsmálin eru eins og þau eru. Síðan hafa þau heldur versnað. Hún var mjög skýr um forgangsröðunina. Þessi ríkisstjórn horfir innávið á meðan staðan í efnahagsmálum er svona.
Þú ferð svo ekki fram og bíður aðra um nákvæmt og tímasett plan og að öðruvísi megi ekki gagnrýna. Það er bara fáránleg hegðun. Það er búið að nefna margoft hvað þarf að gera, ný þjóðarsátt á vinnumarkaði og jafnvægi á húsnæðismarkaði myndu fleyta okkur nær marki. Það er ríkisstjórnarinnar að leiða þetta. En hún treystir sér ekki í verkefnið. Og hún fer svo sannarlega ekki í það með klofna þjóð í ESB átökum næstu árin.
Hún er ekki við völd! Af hverju er svona erfitt fyrir þig að benda fingri á þá sem stjórna og eru í ábyrgðarlausri vegferð og ekki að standa við gefin loforð.
Þess í stað bendir þú fingri á alla aðra, sem ekki stýra landinu? Ætlast til að ég komi með plan. Stjórnarandstaðan komi með plan.
Hvers vegna spyrð þú ekki hvað Kristrún gerði við planið sitt?
@Kjartans@einarorn Það er ríkisstjórnarinnar að leiða næstu skref og útfæra tímalínu. En hún er upptekin við eitthvað annað. Við vitum öll hvað þarf að gera.
@Kjartans@einarorn Þig skortir lesskilning ef þú lest út úr þessu að eg sé að leggja til nákvæmlega sömu aðgerðir og áður. Og það að þú talar um áratugi í þessu samhengi segir mér allt sem segja þarf um hversu blindaður þú ert af eigin bergmálshelli.
@einarorn@hawk_attacks@kristinnpals Þetta er upp til hópa allt sama fólkið. Það vita allir að „Já til að sjá“ er bara markaðsbrella Evrópusinna.
Það er ekkert um vexti í aðildarviðræðunum. Þið segið bara eitthvað og nýtið ykkur í dag neyð fólks til þess að teikna upp einhverja tálsýn fyrir fólk. Skammarlegt!
@doddi_111 Það voru vissulega gerð stór mistök þar, en ég ekki hefði verið fyrir þau skref sem höfðu verið tekin, þá hefði það tímabil getað farið enn verr. M.ö.o.: Þau mistök sem voru gerð í covid voru ekki kerfislægs eðlis, heldur slæm ákvörðunartaka við mjög snúnar aðstæður.