Spáið í hvað þetta er sjúk þórðargleði! Af veðrinu má sjá að þetta myndband var tekið upp áður en Seðlabankinn tók ákvörðun sína. Þetta lið er búið að bíða í ofvæni eftir vaxtahækkun, sem skaðar alla, og örvast allt við að hafa orðið að ósk sinni.
Þetta er ekki fólk sem ber hagsmuni þjóðarinnar fyrir brjósti sér. Þetta er fólk sem er með agenda. Sérhagsmuni, leyfi ég mér að segja.
Munum að það er sama fólkið og ber ríka ábyrgð á vaxtahækkununum undanfarið, sem er að reyna að selja þjóðinni þessa snákaolíulausn.
Það eina sem aðildarviðræður gera er að tefja það að hægt verði að ná tökum á efnahagsmálunum hér. Við þurfum að taka til heima hjá okkur og koma á nýrri þjóðarsátt. Mikilvæg skref hafa verið stigin í hagstjórninni, með allt annarri peningastefnu. Við nutum þess á árunum fyrir Covid. Allt stefndi svo í rétta átt áður en vinstri stjórnin tók við. Næstu skref verða ekki stigin með klofna þjóð og vinstri stjórn við völd næstu árin.
Það eina sem þarf er fólk við stjórnvölinn sem hefur getu og þor til þess að takast á við verkefnið. ESB eða ekki þá er það okkar að ná þessum vöxtum niður. Aðildarferli mun aðeins tefja það.
Það hefur verið óhugnanlegt að fylgjast með viðbrögðunum við morði Charlie Kirk.
Sumir fjölmiðlar, innan lands og utan, hafa frá fyrstu fréttum lagt áherslu á að Kirk hafi verið umdeildur eða jafnvel „öfga-hægrimaður”. Endurfluttar hafa verið, gagnrýnilaust, ýmsar rangfærslur um manninn sem og óhróður andstæðinga um hann. Fullyrðingarnar sem nú virðist ljóst að hafi verið hvati morðingjans.
Góð leið til að átta sig á fáránleika umfjöllunarinnar er að segja söguna eins og hún var nema með einni breytingu.
Ímyndum okkur að Charlie Kirk hefði verið vinstrimaður. Víxlum hægri og vinstri en höldum öðru óbreyttu:
Ímyndum okkur að hinn ungi vinstrimaður hefði frá 18 ára aldri beitt sér gegn ofbeldi og fyrir rökræðu í samfélaginu. Það hefði hann gert m.a. með því að ferðast á milli háskóla og bjóða fólki að gagnrýna sig.
Hann hefði verið óhræddur við að mæta í stóra hópa ákafra hægrimanna og látið öskra á sig en ávallt minnt á gildi þekkingar og rökræðu.
Ímyndum okkur svo að fyrir vikið hefði þessi málsvari tjáningarfrelsis, sem var tilbúinn til að rökræða við fólk bæði lengst til vinstri og hægri, orðið að hatursfígúru öfga hægrimanna sem hefðu skáldað allt mögulegt um afstöðu mannsins fremur en að svara athugasemdum hans með rökum.
Ímyndum okkur loks að hinn ungi vinstrimaður hefði verið í miðjum rökræðum í háskóla þegar hann hefði verið skotinn til bana fyrir framan fjölskyldu sína og fjölda ungs fólks sem var mætt til að hlýða á rökræður.
Aðrir hefðu séð myndbandsupptökur af morðinu á þekktasta talsmanni vinstristefnu, rökræðu og friðar í Bandaríkjunum. Séð hvernig blóðið lak yfir hvítan stuttermabol merktan „Frelsi” (eða „Ást og friður”) þar til manninum blæddi út.
Hver hefðu viðbrögðin orðið?
Hvernig hefðu fjölmiðlar fjallað um málið? Hefðu þeir byrjað á að útskýra að þetta hafi nú verið mjög umdeildur maður og öfga-vinstrimaður. Hann hafi sagt margt sem fólk taldi móðgandi.
Hefðu þeir á fyrsta degi skellt fram gömlum fullyrðingum hatursmanna hans og birt þær sem sannleika?
Hefði íslenskur blaðamaður skrifað langa níðgrein um manninn hálfum sólarhring eftir að hann var myrtur?
Hefðu álitsgjafar fyrst og fremst lýst áhyggjum af því að vinstrisinnuð stjórnvöld gætu nýtt „atburðinn” til að herða tökin?
Hefðu stuðningsmenn hins myrta látið sér nægja að halda bænastundir eða hefðu hafist óeirðir í borgum um öll Bandaríkin?
Og hvað hefði gerst ef ótrúlegur fjöldi fólks hefði ýmist afsakað morðið á unga vinstrimanninum eða fagnað því?
Eða ef samfélagsmiðlar hefðu fyllst af gömlum rangfærslum um manninn, sömu rangfærslum og stuðluðu að morðinu?
Hver hefðu viðbrögðin orðið?
Efast einhver um að þau hefðu verið afar ólík því sem við höfum horft upp á eftir morðið á Charlie Kirk?