Loksins aftur Vísindavaka! Sjáumst í Laugardalshöll á morgun, laugardaginn 1. október milli 13 og 18.
Vísindasmiðjan lætur sig ekki vanta og við verðum með allt okkar besta dót! @visindavaka #visindavaka#vísindavaka#EuropeanResearchersNight
Móttaka skólahópa í Vísindasmiðjunni hófst í vikunni. Frábært að fá svona hressa krakka í heimsókn.
„Má búa hérna?“ -Gestur í Vísindasmiðjunni
Skráning skólahópa fer fram hér: https://t.co/r6CWvXCDRp
Fyrir 45 árum sendi NASA hljómplötu út í geim með geimförunum Voyager 1 og 2. Platan, Sounds of Earth, hefur fangað huga fólks allar götur síðan.
Í vetur stendur kennurum til boða að taka þátt í þverfaglegu þátttökuverkefni sem er innblásið plötunni. Sjá:
https://t.co/R1cKvC6ieS
Vísindasmiðjan býður upp á #kennarasmiðjur í næstu viku! Stærðfræði, eðlisfræði og eðlisfræði með forvitnisvalandi og skapandi verkefni að leiðarljósi.
Hlökkum til að sjá ykkur! #menntaspjall
https://t.co/UiOngcMjUZ
Í maímánuði ferðast #Háskólalestin um landið og heimsækir ár hvert fjóra staði. Í ár hóf lestin ferð sína á Hvolsvelli og í Grindavík en heldur á Dalvík í dag og verður á Ólafsvík í næstu viku.
Föstudaga er kennt í skólanum og laugardaga er vísindaveisla fyrir allt nærsamfélagið!
Vísindasmiðjan verður með tónlistarsmiðju og uppstillingar tengdar hljóði á Big Bang viðburði barnamenningarhátíð á morgun frá kl. 13-16.
https://t.co/DzYbULXMv5
Vísindasmiðjan verður að vanda á Uppsprettu SFS með kynningu á því sem við erum með í boði fyrir skólafólk.
Sjáumst í Sjóminjasafninu á morgun, 7. október, á milli 13 og 16! #uppspretta#uppspretta2021#menntaspjall
https://t.co/Qux2SNXPc7
Flísunarsmiðjan hennar Nönnu breyttist um tíma í platónskra margflötungasmiðju. Gæti líka orðið skemmtileg kennarasmiðja þar sem við getum kafað í veggfóðurgrúpurnar 17, penrose flísun, mótun flóknari flísa með einsfirðun, og listsköpun út frá því. #menntaspjall#sveigjanleikinn
Önnur ný smiðja er í höndum Sæunnar sem er framhaldsnemi í umhverfisfræði og í stjórn Ungra umhverfissinna. Smiðjan fjallar einmitt um umhverfismál þar sem gestir ígrunda með Sæunni neyslu nærsamfélagsins og hvað við getum öll gert til að bæta heiminn sem við byggjum saman.
Vísindasmiðjan er nú komin á flug eftir opnun fyrir móttöku hópa á þriðjudaginn í síðustu viku. Við höfum tekið inn nokkra nýja leiðbeinendur og aðrir hafa tekið við vaktstjórn en vanir gestir Smiðjunnar munu enn þekkja þó nokkra reynslubolta þegar þau sækja okkur heim.
Við erum alltaf spennt fyrir því að þróa nýjar smiðjur og hér er ein slík sem Nanna sérum. Hún er nemi í stærðfræði og hefur m.a. séð um Steplur diffra verkefnið. Í þessari smiðju vinna gestir með ólíkar aðferðir til að þekja tvívíðan flöt með reglulegum og óreglulegum formum.
Allt klárt fyrir síðustu kennarasmiðju haustbyrjunar. Bættum við auka smiðju vegna mikils áhuga og ætlum að föndra og forrita með kennurum í dag. #microbit#tækjaforritun#kennarasmiðja
Haustið í Vísindasmiðjunni er komið á fleygiferð. Við héldum fjórar vel sóttar kennarasmiðjur í ágúst, höfum opnað fyrir skráningar og tökum á móti fyrstu hópum 14. september.
https://t.co/QRt03zwcZT