Ég er svo ógeðslega hræddur um að flokkar komist til valda hérna sem ætla að hrófla við borgarlínunni. Bara rétt fikta nógu mikið í henni, til þess að þetta hætti að vera hágæða verkefni og verði þess í stað hin dæmigerða íslenska æpa. Þetta er það eina sem ég hef verið spenntur fyrir í Reykjavík, síðan ég man eftir mér.
Ég finn að ég er byrjaður að þróa með mér svona kaldhæðna- brynju um niðurstöður kosninganna. Eins og mér sé dröll, en mér er ekki dröll.
Ég keyri heavy mikið, þú veist stundum 2000km á mánuði. Tek strætó heavy mikið. Hjóla smá. á þrjú börn, hund. Með allt í gangi. Leiðakerfi og tíðni borgarlínunnar myndi gjörbreyta því hvernig ég fer um, þó ég myndi samt mest hossast á bíl.
Mér finnst engar gáfulegar umræður hafa farið fram um borgarlínuna fyrir þessar kosningar. Þeir sem eru á móti, og eru með einhverjar þriðja flokks útfærslur að stinga upp á staðinn - nálgast borgarlínuna sem samgönguverkefni, en hún er svo miklu miklu miklu meira. Að láta eins og þetta sé einhver trilljarða bein fyrir Samfylkinga-fólk, bara plís. Þetta er sérsniðin lausn sem mun koma einstaklega vel við borgarbúa, sama hvort þeir nýti sér vagnana eða ekki.
Hún saumar saman borg sem fúnkerar illa, hún mætir þörfum yngri kynslóðar og hún kallar á mjög organíska þéttingu, þar sem þjónusta og íbúðir byggjast í grennd við stoppistöðvar.
Bara umræðurnar um Suðurlandsbrautina, hafa aldrei farið dýpra en hróp og köll um að það sé verið að þrengja umferð. Hefur fólk kynnt sér hvernig skipulagið við Suðurlandsbrautina er? Það er ógeðslega flott og ógeðslega spennandi, býr til alvöru borgargötu í gegnum Reykjavík. Þarna mun vera stræti stútfullt af þjónustu og íbúum við fokking þjóðarleikvanginn! Og á þessari leið, í götum fyrir ofan er ennþá bara mikið af húsnæði sem stendur autt eða er í dularfullri notkun, þar sem eitthvað spennandi getur kviknað, ólíkt því steríla drasli sem sem getur greitt leigu í því nýbyggða.
Það er einhver dýpt farin úr umræðunum um þetta. Og þvílík vonbrigði að sjá eftir Hildi Björns fara þennan veg. Þetta er manneskja sem ég hef heyrt tala af innlifun um borgarlínuna. Þetta er manneskja sem hefur hingað til staðið keik og kosið með öllum þeim ákvörðunum sem hafa komið þessu verkefni á þann stað sem það er í dag.
Og svo er hún mætt til Tóta að hnussa og fussa og láta eins og þetta sé eitthvað tómt píp úr einhverjum galgopum á Kaffi Vest. Djöfulsins drasl.
Allavega þegar við Hildur hittumst á Hosiló í vetur og hún spurði mig hvort ég vildi taka sæti á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi kosningar - þá var hún talsmaður Borgarlínunnar. Hvað gerðist í millitíðinni - ég veit það ekki.
Það er fólk í framboði, það er fólk sem mun enda í borgarstjórn sem segist ætla að byggja íbúðir í útjaðri Reykjavíkur og laga umferðina - þau segja þetta oft í sömu setningu. Þau ætla að laga umferðina með því að bæta við bílum í hana. Ég veit ekki alveg hvað maður segir við þessu. Er þinn frambjóðandi heimskur? eða er hann lygari?
Það verður ekki bæði haldið og sleppt. Það sem við spörum með því að þynna út Reykjavík, því töpum við svo í umferðinni - og öfugt.
Borgarlínan er svo fokking vandað verkefni. Og það er ekki að ástæðulausu að það eru bara gamlir karlar sem skrifa greinar gegn henni - (og enginn þeirra minnist á skipulagsþáttinn)
Á að neyða fólk upp í borgarlínuna? Nei maður. Alls ekki. En þú ert neyddur til að borga skatta mánaðarlega og pls setjum þá í eitthvað sem er alvöru.
En þú veist, líklega mun þetta fara til fjandans. Ég jafna mig, heima vorum við Alþýðubandalagsfólk á meðan Davíð Oddsson var Davíð Oddsson og við kunnum þá list að éta skít betur en aðrir.
Ég verð samt að reykja vindil og hlusta á rapp.
(Að gefnu tilefni, hef aldrei kosið Samfylkinguna og myndi aldrei taka sæti á lista Sjálfstæðisflokksins)
@konradgudjons Var ég að misskilja? Ég get svo svarið að þú talaðir um að það var verið að lofa of mörgum íbúðum og vísaðir svo í að við höfum áður byggt of mikið. 2019 skrifaðirðu líka grein sem hét "húsnæðisskortur heyrir brátt sögunni til"
https://t.co/msX0RNLoqk
Það keppst um að segja hvað það vantar margar íbúðir á höfuðborgarsvæðinu á næstu 2-3 árum - 8.000, 10.000, 17.000. Þess vegna er kærkomið #realtalk í þessari Hagsjá Landsbankans: https://t.co/1ucmSyeFly
@haustmann Æji er það samt. Wolves áttu ekkert skilið út úr þessum leik. Bara tvö skíta mörk frá Wolves og við óheppnir. Langt í frá versti leikur Liverpool á tímabilinu.
@erlendur Þarna gerist reglulega að biðröðin fyrir beygjuljósinu til vinstri nái inn á aðalbrautina sem veldur því að vinstri akreinin stoppar. Svo er bara einhver ekki að fylgjast með og nær ekki að stoppa sig áður en hann ekur aftan á.
@haustmann Þarna er mismunur á því hvað manni finnst og hverjar reglurnar eru. Reglurnar eru skýrar með að ef sóknarmaður fær bolta í hönd og skorar svo þá er það hendi. Skiptir engu máli hvernig hann fær boltann í höndina.
Eitthvað mjög Sjálfstæðisflokkslegt við gutta í turtleneck og leðurjakka að þykjast skera bíl í sundur með hobbírokk á meðan einhver andlitslaus iðnaðarmaður vinnur actual vinnuna.
@arnarsveinn Það eru til svona milljón myndir af Snorra, maðurinn myndast ágætlega nefnilega þó svo að skoðanirnar hans séu ekki mér að skapi. Af hverju að þráast við að hafa þessa mynd?
Fjölgun umsækjenda um alþjóðlega vernd ef úkraínumenn eru teknir út úr jöfnunni er nánast engin milli ára. Ekki láta Miðflokkinn ljúga neinu öðru að þér.
Fjölgun umsækjenda um alþjóðlega vernd ef úkraínumenn eru teknir út úr jöfnunni er nánast engin milli ára. Ekki láta Miðflokkinn ljúga neinu öðru að þér.
Fjölgun umsækjenda um alþjóðlega vernd ef úkraínumenn eru teknir út úr jöfnunni er nánast engin milli ára. Ekki láta Miðflokkinn ljúga neinu öðru að þér.
Þvert á það sem okkur er sagt að trúa, er mikil aukning í komu hælisleitenda til landsins. Aukningin milli sept 24 og 25 er 80%. Okt-tölur ekki komnar. Kerfin okkar ráða ekkert við þetta og það vita allir og finna allir.