@HildurArnaH Þau eru það. Hélt í gær að það væri stór hópur að slóra og sóa tímanum... nei nei þau voru á fullu að vinna. Geggjað. Þú kíkir í heimsókn þegar verkefnin eru tilbúin ✌️
1.Þá er áhugasviðsverk. okkar í Setó farið í gang. Frábærar hugmyndir komnar fram ma. Bart Simpson, Abba, smásaga,Eurovision, Kvíði, ADHD, fuglar, PRADA, skák, Lotukerfið, WWII, FH, Elvis Presley, Spaghetti, Mývatn, Bugatti og margt fleira. Þetta er geggjað gaman! #menntaspjall
Samtal við nemanda áðan: ,,Hey Atli, þú hafðir í alvörunni rétt fyrir þér." Atli steinhissa ,,já var það?" Nem. ,,já, það er actually skemmtilegra að læra þegar maður veit eitthvað um hlutina". #náðiígegn#náttúrfræði#setbergsskóli#menntaspjall#valdefling
@Emma_aevars Það eru samt ekkert allir tímarnir hjá okkur sem eru geggjaðir, sumir eru alveg glataðir eins og gengur og gerist. Næsti mánuðurinn eða svo verður með mikla áherslu á að tala og hlusta... það verður eitthvað 🤔
Ég þurfti að reka 5 fótboltastráka úr kennslstof. áðan. Þeir neituðu að fara. Ég varð dálítið fúll, viðurkenni það en samt. Þeir verða að fara eftir fyrirmælum. Líka þegar þeir vilja klára verkefnin sín eftir skóla því þau eru skemmtileg. Þeir voru í 🇩🇰 #menntaspjall#seinnáfund
@Emma_aevars Sko... þetta er langhlaup. Vandamálið með 🇩🇰 er viðhorfið hjá nem. og foreldr. Ég fór þá leið strax í haust að gera tímana í 🇩🇰 eins hressandi og ég gat. Ratleikir, dans, boðhlaup og mikið af tónlist hafa hjálpað til. Svo samvinna og lausnaleit í þýðingum. Þetta er mín aðferð.
ÁHUGASVIÐSVERKEFNI. Við í Setó erum að fara af stað með okkar fyrsta áhugasviðsverkefni fyrir unglingad. Erum að finna upp hjólið. Ef það er einhver sem vill sýna okkur verkefnalýsingu þá býð ég upp á kaffi og köku #menntaspjall#sharingiscaring#setbergsskoli
Það er frábær að sjá stráka,sem hafa litið á sig sem lélega í skóla,vita ekki neitt osfrv. valdeflast gríðarlega bara við það að þeir fatti að það er gott að vera í skóla og það sé tekið eftir þeim,hrósað á réttum tíma og hlustað á þá.Full af töfrum að gerast #menntaspjall#setó
Það er vanmetið hvað frjáls tími getur gert mikið fyrir nemendur. Spil, tafl, leikir og tónlist rétt fyrir helgi eftir erfiða viku. Allir glaðir og fara með bros inn í helgina. Love it. #8bekkur#menntaspjall#setbergsskóli