ECC Iceland is part of the ECC-Net, which gives help and advice to consumers facing problems regarding cross-border purchases within the EU, Norway or Iceland.
Ef þú lendir í vandræðum við kaup á netinu eða í ferðalagi sem þú getur ekki leyst við seljanda, hafðu samband við okkur! Við veitum neytendum upplýsingar og aðstoð án endurgjalds!
Ef jólasveinninn færir þér ranga gjöf eða ef þú sérð eftir kaupum sem þú hefur gert, hafðu í huga að ef þú kaupir á netinu innan EU að þá er 14 daga réttur til að hætta við kaup á flestum vörum. Margar verslanir bjóða einnig rúman skilarétt þegar keyptar eru vörur fyrir jól.
Ef tilboð virðist vera of gott til að vera satt að þá er það mjög líklega svindl eða mistök í verðlagningu. Ef þú ert í vafa er gott að skoða umsagnir aðra viðskiptavina.
Ef þú ert að segja upp þjónustu gerðu það alltaf beint hjá sejlandanum. Ef þú leitar á netinu hvernig eigi að segja upp þá skaltu vara þig á þriðja aðila þjónustusíðum sem kunna að birtast í leitarniðurstöðunum.
Prufaðu mánuð án endurgjalds! Mundu að lesa vel skilmála áður en þú bókar. Endurgjaldslaus þjónusta eða vörur gætu verið tilraun seljanda til að festa þig í áskrift hjá honum.
Gættu varhug við „fríum“ þjónustum á netinu, svo sem heilsumatsþjónustu eða ferilskrárgerðar. Þrátt fyrir að þær líti út fyrir að vera án endurgjalds að þá leynast gjarnan falinn kostnaður. Forðastu að slá inn persónuupplýsingar þínar á slíkar síður nema að vel athuguðu máli.
Lærðu að sjá hvaða verslanir eru „sýndarverslanir“ (e. dropshipping). Þær nota gjarnan blekkjandi viðskiptahætti og vafasamar markaðsaðferðir.
https://t.co/sfA4yFL3dY
Ertu að gera ráð fyrir löngum biðtíma í öryggisleitinni á flugvellinum? Skoðaðu heimasíðu flugvallarins og flugfélagsins til að tryggja að þú gefir þér nægan tíma.
Ef þú bókar hótelgistingu á netinu, hafðu í huga að það er ekki sjálfstæður réttur til að afpanta herbergið. Því er mikilvægt að skoða vel afbókunarskilmála.
Lestarfarþegar eiga ýmis réttindi innan EU. Ef langferðarlestarferð er aflýst eða seinkar um meira en 60 mínútur þá getur farþeginn valið um endurgreiðslu eða nýja ferð á lokaákvörðunarstað við fyrsta tækifæri.
Ertu að fara að leigja bílaleigubíl? Þegar þú bókar bílaleigubíl gefðu þér tíma til að skoða vel skilmálana. Skilmálar og landslög í landinu sem þú tekur bílinn stýrir réttindum þínum og skyldum. Hægt er að skoða góð ráð á heimasíðu okkar:
https://t.co/kNbMfYcPGs
Ertu komin á ákvörðunarstað en farangurinn barst ekki með fluginu? Hægt er að nálgast góð ráð á heimasíðu okkar varðandi farangur:
https://t.co/chS72dYDjM
Var fluginu þínu aflýst? Þú getur valið á milli þess að fá nýtt flug eða endurgreiðslu á flugmiðanum. Þá gætir þú einnig átt rétt á stöðluðum skaðabótum. Sjá nánar:
https://t.co/LiACZ9RNgy
Pantaðir þú vöru utan Evrópu - t.d. frá kínverskri netverslun? ECC-Netið getur því miður ekki annast milligöngu við fyrirtæki utan Evrópusambandsins, en við getum veitt almennar ráðleggingar. Stórir seljendur eru gjarnan með eigin vettvang til að leysa úr ágreiningi.
Gölluð vara, vara skilar sér ekki, endurgreiðsla berst ekki… Það er mikilvægt að skrifa góða kvörtun á seljanda. Hafðu samband við okkur ef þú hefur keypt vöru innan Evrópu og ert í vandræðum.
Þegar þú kaupir á netinu þá er ráðlegt að nota kreditkort til að greiða fyrir vöruna. Ef vörurnar berast ekki, eða eru ekki réttar, þá getur þú farið fram á endurkröfu á færslunni hjá bankanum þínum.
Á leiðinni til Þýskalands á EM 2024? ⚽ Skoðaðu nokkur góð ráð frá ECC-Netinu um lestarsamgöngur í Þýskalandi. 🌍🚆 #Euro2024#TravelSmart#SustainableTravel" https://t.co/2CZkGtSahT
We will be participating in the 30 year celebration of EEA cooperation in Iceland. We will be informing guest about consumer rights in Europe and the @ECC_web
🎉Á morgun verður sannkölluð hátíð í Kolaportinu milli 14 og 18! Hátt í 40 básar munu bjóða gestum upp á kræsingar, fróðleik, spurningaleiki um Evrópusamstarf.
🇮🇸Forseti Íslands opnar hátíðina kl 14 og boðið verður upp á afmæliskökur, kaffi og kleinur ofl 🎂
Sjáumst þar! 👋